Morgunblaðið - 26.03.1988, Page 39

Morgunblaðið - 26.03.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 39 Ritgerða- og teiknisamkeppni SFVÍ og ABC: Meðal verðlatina eru ferðir til Englands og reiðhjól f TILEFNI 60 ára afmælis Slysa- varnarfélags íslands þann 29. janúar síðastliðinn efnir barna- blaðið ABC og’ SVFÍ til ritgerða- og teiknisamkeppni fyrir börn á aldrinum 6 til 15 ára. Verkefnið skal vera: Slysavarnarfélag ís- lands. Að sögn Hannesar Haf- stein, framkvæmdastjóra SVFÍ, verða veitt vegleg verðlaun, með- al annars ferðir til Englands fyr- ir f imm börn á vegum Flugleiða. o Forsíða sérprentunar á ABC, þar sem greint er frá starfsemi Slysavamarfélags íslands. Hannes sagði að öllum bömum á aldrinum 6 til 15 ára væri heimil þáttaka í samkeppninni, sem skipt- ist þannig að böm á aldrinum 6 til 10 ára senda inn teikningar en 10 ára böm og eldri senda ritgerðir. Skólastjómm allra gmnnskóla hef- ur verið sent bréf þar sem þeir em beðnir um að hvetja bömin til að taka þátt í samkeppninni. Ritgerð- imar skulu vera um það bil 1.000 orð. Skilafrestur er til 15. apríl og skal umslagið merkt: Ritgerða- og teiknisamkeppni Slysavamarfélags íslands og ABC, Armúla 18, 108 Reykjavík. Auk Englandsferðanna eru veg- leg bókaverðlaun, þtjú reiðhjól af gerðinni DINO BMX 20 tommu og tveir stórir kassar af legokubbum frá Reykjalundi. Morgunblaðið/Bjami Forráðamenn JL Völundar hf. i nýju versluninni, sem opnuð verður í dag að Hringbraut 120. Frá vinstri: Þórarinn Jónsson, stjómarform- aður, Þorsteinn Guðnason, framkvæmdastjóri og Kristján Eiríksson, deildarstjóri. JL Völundur opnar nýja verslun í dag INNLENT Aðalfund- ur Versl- unarbank- ans í dag Aðalfundur Verslunarbankans verður haldinn í dag, laugardag, í Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 14. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður borin fram tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa svo og nýtt hlutafjárútboð. Hluthafar sem ekki hafa vitjað aðgöngumiða á fundinn geta fengið þá afhenta við innganginn. (Fréttatilkynning) NÝ byggingavömverslun verður opnuð að Hringbraut 120 í Reykjavík í dag, laugardag. Verslunin er í eigu fyrirtæksins JL Völundar hf., sem varð til við samruna JL Byggingarvara og Timburverslunarinnar Völund- ar. Þá mun fyrirætkið einnig reka verslun að Viðarhöfða (áður Stórhöfða). í frétt frá fyrirtækinu segir, að sameining JL Byggingarvara og Timburverslunarinnar Völundar hafí þótt mjög vænleg. Völundur hefði fyrst og fremst verslað með timbur og timburvörur, en JL Bygg- ingavörur með flest annað, sem til bygginga þarf, svo vöruframboð hefði lítið skarast. Nýja fyrirtækið varð stofnað 1. janúar sl. og nú er lokið stækkun og endumýjun á versluninni að Hringbraut 120 og jafnframt breytingu á versluninni að Viðarhöfða. Verslunarrrýmið að Hringbraut var tvöfaldað, úr 600 fermetrum í 1200, en þess í stað var hluti vörulagers að_ Hringbraut fluttur að Viðarhöfða. í versluninni að Hringbraut verður lögð áhersla á þekktar vörur, svo sem Unoform eldhúsinnréttingar og Buchtal flísar, að því er segir í fréttinni. Morgunblaðið/Sverrir 87% þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni vom hlynnti því að leggja sérstakt gjald á einnota drykkjarumbúðir sem sá fær greitt til baka sem skilar umbúðunum inn. í bögglinum á myndinni em samanþjapp- aðar 1400 málmdósir, 26 kíló að þyngd, en í pokanum era u.þ.b. 230 dósir. Talið er að um 40-60 milljón dósir muni falla til á ári í fram- tíðinni. Mikið af fiski selt í Þýzkalandi UM 440 tonn af ferskum fiski héðan vora seld á fiskmörkuðunum í Þýzkalandi í gær. Snæfugl SU seldi 204 tonn fyrir 58,85 krónur á kíló að meðaltali. Verð fyrir karfa í afla hans var um 60 krónur. Um 240 tonn voru seld úr gámum og féngust mest 53 krónur á karfakílóið úr þeim. Gæði fisksins voru mjög misjöfn og var lítils- háttar dæmt frá. Snæfugl SU seldi 204 fyrir sam- tals 12 milljónir króna. Meðalverð var 58,85. Um helmingur afíans var karfí en hitt mjög blandað. Úr gá- munum fékkst hæst verð fyrir fisk- inn frá H'.B. & Co. á Akranesi, 52 til 53 krónur á hvert kíló. Verð á Skoðanakönnun SKAÍS fyrir Samband ungra sjálfstæðismanna: Mikill meirihluti þjóðarimiar vill skilagjald á einnota umbúðir hinu var lægra og allt niður í 2 til 3 krónur vegna þess að eitthvað lenti í gúanói. Allir dagar fram í næstu viku eru ásetnir af íslenzkum skipum._ I dag, laugardag, selur Guðbjörg ÍS 245 tonn, á sunnudag selur Hegranes SK 200 tonn, á sunnudag og mánu- dag selur Ólafur Jónsson GK 180 og á mánudag selur Már SH 200 tonn og loks selur Ottó N. Þorláks- son RE 145 tonn á mánudag og þriðjudag. Öll þessi skip selja í Bre- merhaven nema Már, sem selur í Cuxhaven. Ekki er talið að um fískskort yerði að ræða á þessum stöðum þessa daga. í SKOÐANAKÖNNUN sem SKÁÍS framkvæmdi fyrir Samband ungra sjálfstæðismanna dagana 18. og 19. mars kemur m.a. fram að 80,3% þeirra sem tóku afstöðu eru fyígjandi þvi að atvinnufyrir- tæki í ríkiseign verði gerð að almenningshlutafélögum en 19,7% eru því andvfgir. Einnig eru 87% þeirra sem tóku afstöðu fylgjandi því að sett verði sérstakt gjald á allar einnota umbúðir undir drykkjar- vörur sem sá fær greitt er skilar umbúðunum inn. Mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu (86,8%) er hlynntur því að opinberar fjár- veitingar til verðlagseftirlits verði auknar. Þegar spurt var hvert ætti að beina þessum fjárveitingum nefndu flestir Neytendasamtök- in. Hringt var í símanúmer eftir handahófsúrtaki samkvæmt tölvu- skrá Landsímans yfir virk símanúmer (fyrirtæki og stofnanir felld- ar út) fyrir allt landið. Spurningunum var beint til þeirra sem svör- uðu og voru 18 ára eða eldri. Haft var samband við alls 718 einstakl- inga. Stærð úrtaksins var unnin f réttu hlutfalli við íbúa f Reykjavík, á Reykjanesi og á landsbyggðinni. Ifyrst var spurt: „Styður þú eða raðila, 7,8% til Neytendasamta- styður þú ekki auknar (opinberar) fjárveitingar til verðlagseftirlits hér á landi?" Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 86,8% já en 13,2% nei. Þeir sem svöruðu játandi voru spurðir hvort beina ætti þessum fjárveiting- um til Neytendasamtakanna, til Verðlagsstofnunar eða til óháðra rannsóknaraðila. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 44,0% að beina ætti ijárveitingunum til Neytendasam- takanna, 16,8% til Verðlagsstofn- unar, 21,6% til Óháðra rannsókna- kanna og Verðlagsstofnunar, 0,8% vildu beina fjármagninu til Neyten- dasamtakanna og óháðra rann- sóknaraðila, 1% til Verðlagsstofn- unar og óháðra rannsóknaraðila og 7,2% til allra ofangreindra. Þá var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að atvinnufyrirtæki í ríkiseign verði gerð að almennings- hlutafélögum?" 80,3% sögðu já en 19,7% sögðu nei. Samfelldur skóladagur Þá var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að komið verði á sam- felldum skóladegi í öllum grunn- skólum landsins, jafnvel þótt að það kunni að valda einhverri hækkun á sköttum.?" Ef óskað var eftir skýr- ingu á hugtakinu samfelldur skóla- dagur var eftirfarandi skýring gef- in: „Samfelldur skóladagur þýðir að börn þurfí ekki að fara heim á milli kennslustunda sama dag. Slíkt fyrirkomulag hefur í för með sér lengri starfsdag og meiri nýtingu kennsluhúsnæðis og einnig rekstru mötuneytis." Af þeim sem tóku afstöðu svör- uðu 86,4% spurningunni játandi en 13,6% neitandi. Vegatollar Þá var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að vegaframkvæmdir og framkvæmdir við jarðgöng verði í auknum mæli fjármagnaðar með vegatollum?" Af þeim sem tóku afstöðu svöruðu 56,2% spuming- unni játandi en 43,8% neitandi. Þá var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að bamaabætur verði auknar það mikið að foreldri geti átt kost á því að vera heima með bam sitt fram að þriggja ára aldri?" Þessari spumingu svömðu 81,1% játandi en 18,9% neitandi. Þá var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að sett verði sérstakt gjald á allar einota umbúðir undir drykkjarvömr, sem sá fær greitt, er skilar umbúðunum inn?“ 87,0% svömðu þessari spumingu játandi en 13,0% neitandi. Þá var spurt: „Styður þú aðskiln- að ríkis og kirkju?" Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 35,5% já en 64,5% nei. Þá var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að vextir af námslánum * verði niðurgreiddir?“ 43,7% þeirra sem tóku afstöðu svömðu játandi en 56,3% neitandi. Loks var spurt: „Ert þú fylgjandi því eða ekki að ríkið seiji Rás 2?“ 35,7% þeirra sem tóku afstöðu svör- uðu spumingunni játand: en 64,3% neitandi. Hækkandi fiskverð í Bretlandi VERÐ á ferskum fiski í Bret- landi hefur heldur þokazt upp eftir þvi, sem liðið hefur á vik- una. A mánudag fór gámaþorsk- urinn á 58,44 krónur, en var á fimmtudag kominn upp í 67,80 og 70 á föstudag. Talsvert framboð á físki héðan hefur verið á brezku mörkuðunum og á fímmtudag seldu tvö skip afla sinn í Hull og selt var úr 27 gám- um, sem seinkaði á markaðinn. Álftafell SU seldi 86 tonn, mest þorsk. Heildarverð var 67,86 og Guðmundur Kristinn SU seldi 55 tonn, mest þorsk. Heildarverð var 3,4_ milljónir, meðalverð 61,61. Á mánudag fór gámaþorskurinn á 58,44, 60,88 á þriðjudag, 67,80 á miðvikudag, 66,87 á fimmtudag og 70,22 á föstudag. Sama dag fór ýsan úr gámunum héðan á 68,54 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.