Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 46

Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAKDAGUR 26. MARZ 1988 Garður: Vilja fá aftur sinn hluta úr landnámi Steinunnar gömlu Á BORGARAFUNDI í Samkomuhúsinu sl. þriðjudag kom fram tillaga frá einum fundarmanna þess efnis að hreppsnefnd Gerðahrepps færi enn á ný af stað með mál sem hefir verið Garðmönnum þymir í aug- um um langt árabil. Málsatvik voru þau að 4. maí 1966 var ákveðið með lögum að skerða land Gerðahrepps Keflvíkingum til handa þar sem þeir töldu sig vanta land undir íbúðarbyggð. Þrátt fyrir að nú séu liðin 22 ár síðan þetta gerðist bólar ekkert á íbúðarbyggðinni, en aftur á móti hefir mikið vatn runnið til sjávar sfðan. Á þessu svæði í landnámi Steinunnar gömlu eru hin landsfræga Helguvíkurhöfn og kirkjugarður. Ályktunin var svohljóðandi: „Borgarafundur í Garði haldinn 22. marz 1988 hvetur hreppsnefnd Gerðahrepps til þess að leita allra leiða til að endurheimta hluta lands þess er af hreppnum var tekið með lögum á árinu 1966. Fundurinn hefur þá í huga land- svæði neðan Garðsvegar, þ.e. neðan kirkjugarðs í suð-austur frá núver- andi mörkum Gerðahrepps og Keflavíkur, u.þ.b. 300 metra inn fyrir Sandgerðisveg, þaðan beint í sjó fram suð-austan við Helguvík." Til að setja þetta í mál sem allir skilja er hér um að ræða svæðið frá golfvellinum í Leiru í átt til Keflavík- ur, en fyrir lagabreytinguna 1966 tilheyrðu yztu húsin í Keflavík Gerðahreppi. Ályktunin var samþykkt sam- hljóða á fundinum. Finnbogi Bjömsson oddviti Gerða- hrepps sagði að loknum fundi að unnið yrði í þessu máli strax. Geng- ið yrði á þingmenn kjördæmisins og kannaður vilji þeirra á flutningi til- lögu á Alþingi þessa efnis. Þeim hefði verið sent bréf í fyrra þar sem þeim var gerð grein fyrir málsatvik- um. — Arnór Frá afhendingu nýju sjúkrabifreiðanna sl. laugardag. Morgunbiaðið/Þorkeil Rauði kross Islands: Fjórar sjúkra bifreiðir afhentar RAUÐA kross-deildum Skaga- fjarðar, Ólafsfjarðar, Fáskrúðs- fjarðar og Suðurnesja voru ný- lega afhentar nýjar sjúkrabif- reiðar Bifreiðirnar eru af teg- undinni Ford Econoline og allar með fjórhjóladrifi nema sú sem Suðurnesjadeildin fékk. Jóhann Pétur Jónsson, deildar- stjóri neyðarvama- og bifreiða- deildar Rauða kross íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að bif- reiðimar með flórhjóladrifínu hefðu kostað 2.100.000 en eins- drifsbifreiðin 1.800.000. Með því að kaupa bifreiðimar milliliðalaust og fá ódýran flutning á þeim frá Bandaríkjunum hefði hver bifreið orðið um einni milljón króna ódýr- ari en ella. Bifreiðakaupin hefðu m.a. verið íjármögnuð með frjáls- um framlögum og fé úr sérverk- efnasjóði RKÍ sem t.d. fengi tekjur af spilakössum RKÍ. UPPLÖGÐ ÚTIVIST FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA B LAFJ ALLADAG U R Á SKÍÐUM Bláflallanefnd efnirtil sérstaks skíðadags í Blápium laugardaginn 26. mars. Tilgangurinn er að vekja athygli á heilbrigðri útivist til plla og veita almenningi kennslu í svigi og skíðagöngu. Boðið verður upp á ókeypis kennslu í svigi og göngu í öllum hæfnisflokkum. Allar skíðabrekkur og göngubrautir verða opnar ásamt öllum lyftum. Sérstök bamagæsla verður á svæðinu. Svifdrekamenn munu sýna listir sínar og Harmoníkufélagið leikur „skíðatónlist“. Veitingar verða seldar á öllum kennslusvseðum. Hátíðin hefst kl. 10:00 og stendurtil kl. 17:00. FJÖLMENNUM í BLÁFJÖLL, GÆTUM FYLLSTU VARKÁRNIJAFNT í AKSTRI, SEM Á SKÍÐUM. BLAFJALLANEFND Norræna húsið: Finnskur leikhópur sýnir í Dymbilviku Finnski leikhópurinn Viirus sýnir leikritið „Skarbránnaren" Logskurðartækið, í Norræna húsinu í dymbilviku. Höfundur verksins er ungur Svii, Magnus Dahlström, og flytjendur eru ungir sænskumælandi Finnar. Leikritið fjallar um Jonny og Ove sem vinna við logsuðu. Þeir hittast í búningsherbergi verksmiðjunnar þar sem þeir vinna. Sú spuming vaknar hvor þeirra hafi gleymt að skrúfa fyrir gaskranann á logskurð- artækinu. Samræður þeirra snúast upp í valdabaráttu þeirra á milli. Eða er það valdabarátta stórveld- anna? Viirushópurinn tók nýlega til starfa og er Skarbránnaren annað verkefni hópsins. Sýningar á verk- inu verða þijár, þriðjudagskvöldið 29. mars kl. 20.30 önnur sýning verður á Skírdag kl. 16 og þriðja sýning laugardaginn 2. apríl kl. 16. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Siguröur Jónsson Nokkrar myndanna sem á sýningunni eru. Selfoss: Myndlistarfélag Árnes- sýslu með árlega sýningu Selfossi. ÁRLEG samsýning Myndlistarfé- lags Ámessýslu verður haldin i Safnahúsinu á Selfossj dagana 26. mars til 4. apríl. Á sýning- unni eru myndir eftir 13 félaga. Sýning þessi er árlegur viðburður og er nú haldin í áttunda sinn. Félagar í Myndlistarfélagi Árnes- sýslu eru 40 talsins. Sýningin er opin klukkan 14—22 alla helgidaga og klukkan 18—22 virka daga. Þeir sem sýna eru Guðjón Sigfús- son, Sigurður Einarsson, Svanhvít Kjartansdóttir, Jón Magni Ólafsson, Torel Malmo, Helga Guðmunds- dóttir, Gunnar Granz, Signý Jör- undsdóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir, Gunnur Gunnarsdóttir, Rúnar Gránz, Kristín Kalmansdóttir og Þóra Siguijónsdóttir. Sig. Jóns.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.