Morgunblaðið - 26.03.1988, Side 49

Morgunblaðið - 26.03.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 AKUREYRI Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson Frá ferðamálafundinum á Húsavík, frá vinstri: Pétur Snæbjörnsson hótelstjóri, Einar Hjartarson formað- ur ferðamálafélagsins og Bjami Sigtryggsson aðstoðarhótelstjóri. í ræðustól er Finnur Kristjánsson. Húsavík: Fundur um ferðamál Húsavík. Ferðamálafélag Húsavíkur boðaði forvígismenn ferðamála og áhugamenn til fundar á Hótel Húsavik fyrir skömmu til um- ræðu um ferðaþjónustu á Húsavík og nágrenni. Framsöguerindi á fundinum flutti Bjami Sigtryggsson, aðstoð- arhóteistjóri Hótel Sögu, og flutti hann fróðlegt erindi um skipulag og markaðsSetningu ferðaþjón- ustunnar almennt og tók svo sérs- taklega til umræðu hvað Húsavík og Þingeyjarsýsla hefðu upp á að bjóða. Miklar umræður urðu og bent var á að Þingeyjarsýsla hefði margt fleira upp á að bjóða en Mývatns- sveit, þó hún væri miðpunkturinn í dag. Húsavík væri lítið sjávarþorp, hvar Garðar Svavarsson hafði fyrst- ur landnámsmanna vetursetu á ís- landi, sem gæti vakið forvitni stór- borgarbúa að skoða. I næsta nágrenni er Hallbjamar- staðarkambur, hvar „lesa" má mik- inn og merkan hluta jarðsögunnar. Nefndir vom margir merkir og fal- legir staðir, svo sem Þjóðgarðurinn við . Jökulsárgljúfur, Ásbyrgi, Hljóðaklettar, Hólmatungur, For- vaðar, Dettifoss, Goðafoss, Laxá, fagurt sólarlag, og sjá mætti Grímsey í hillingum. Bjóða mætti upp á fótabað norðan heimskauts- baugs og svo mætti lengi telja. Fundur þessi var vel sóttur og áformað er að hafa slíka fundi ár- lega haust og vor. — Fréttaritari. Norðlenskir sóknarbátar: Vilja fá fimm auka sóknardaga — sökum veiðitafa vegna íss Útgerðarmenn á Norður- landi hafa skrifað sjávarút- vegsráðuneytinu og alþingis- mönnum bréf þar sem farið er fram á að sóknarmarksbátar fái fimm aukasóknardaga í mars eða aprfl vegna veiðitafa er þeir urðu fyrir er isinn rak að landi í síðasta mánuði. Valdimar Kjartansson útgerð- armaður á Hauganesi sagði í sam- tali við Morgunblaðið að veiðiban- nið um páskana tæki aðeins til sóknarmarksbáta og tæki gildi nk. þriðjudag. „Sumir bátanna voru orðnir tæpir með sóknardaga áður en ísinn kom og töfðust þeir þá frá veiðum. Alls eru 45 sóknar- dagar í mars og apríl og förum við með bréfinu fram á 50 daga. ísinn lokaði miðunum fyrir öllu Norðurlandi svo að sóknarbátar allt frá 10 og upp í 180 tonn urðu frá veiðum í um það bil fimm daga". Erindi útgerðarmannanna er nú til meðferðar hjá ráðuneyt- MetsölutHad á hverjum degi! Kodak litaframköllun Við framköllum á þeim tíma sem þér hentar. TediGmyndir? Hafnarstræti 98 - sími 96-23520. SIEMENS til fermingargjafa • Vasadiskó • Útvörp með segulbandi • Hljómtækjasamstæður • 14" sjónvörp með fjarstýringu • Myndbandstæki Hámarksgæói - Lágmarksveró NYJAR BÆKUR Gerist áskrifendur og borgið fyrir 2 bækur í mánuði kr. 620 með Visa eða Eurocard Áskriftarsími 96-24966 Á SKÍÐUMISKEMMTIÉGMÉR... I Hlíðarfjalli er gott færi og nægur snjór. Ath.: MUNIÐ FLUGLEIÐATRIMMIÐ 3.APRÍL OG SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 14.-17. APRÍL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.