Morgunblaðið - 26.03.1988, Page 51

Morgunblaðið - 26.03.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 51 Hugsum fyrst - skrifum svo eftir Ragnar Gunnarsson í tilefni greinarskrifa Ara Tryggvasonar í Mbl. 22. mars sl. er þörf á að benda á eftirfarandi: Félag áhugamanna um stjörnulíf- fræði er hópur fólks sem leitar sambands við framliðna á miðils- fundum. Félagar þess vilja fræð- ast um lífíð eftir dauðann og þyk- ir þeim fengur í tilsögn og visku um ýmis málefni þessa heims og annars. Félagamir reyna að hafa góð áhrif á umhverfí sitt meðal annars með því að nefna sjúklinga við framliðna lækna á fundum þessum og hugsa sterkt til sjúkl- inganna um leið í þeirri von að þeim batni að einhverju leyti. Fé- lagsmenn telja að Helgi Pjeturss hafi haft rétt fyrir sér um eðli lífsins og framhald þess en þó eru skiptar skoðanir meðal þeirra um sumar kenningar og hafa reyndar nokkrir félagar lítið lesið Nýal. Undirritaður telur t.d. sumt í bók- um Helga ólíklegt, en honum fínnst sennilegt að margar kenn- ingar séu réttar. Félagar í FAS líta sem sagt alls ekki á skrif Helga sem heilagan sannleik og er því út í bláinn hjá Ara að tala í niðrandi tón um FÁS sem trúfé- lag. FÁS hefur allt of sjaldan hljóð- ritað sambandsfundi og er rétt hjá Ara að nauðsynlegt sé að hafa þann háttinn á. Félagið hefur ekki staðið fyrir neinum vísindalegum rannsóknum og enginn hefur hald- ið því fram, þannig að erfitt er að átta sig á því hvaða ástæðu Ari hefur til að spyrja um það. Hins vegar væri gaman að geta slíkt seinna því að rannsóknir hafa sýnt — svo að eitthvað sé nefnt — að ýmsar breytingar verða á miðli þegar framliðinn maður talar í gegnum hann. Hjartsláttur hægist gjaman mjög, hitastig lækkar, rafspenna yfír heilahvel breytist o.s.fív., eins og í venjulegum' svefni! (sbr. t.d. bókina PSI-Fálle eftir H. Herlin — Bastei-Lúbbe Verlag 1986). Á Islandi starfar mjög hæfur dulsálarfræðingur, dr. Erlendur Haraldsson, kunnur í sinni grein erlendis. Væri Tilraunafélaginu, FÁS og reyndar öllum félögum sem leita sambands við framliðna, mikill akkur í að njóta aðstoðar hans, eigi þess háttar rannsóknir eftir að eiga sér stað. Geta má þess til gamans, að á síðasta sam- bandsfundi FÁS (21/3) var stadd- ur bandarískur sálfræðingur, Co- rolyn Swanson að nafni, sem feng- ist hefur við dulsálarfræði en Er- lendur Haraldsson benti henni á félag okkar. Fékk hún okkur heim- ilisfang sitt í Bandaríkjunum og sagðist hafa áhuga á því að fylgj- ast með starfí FÁS og kannski að taka þátt i rannsóknum _ sejnna, ef af þeim yrði, svo að FÁS er ef til vill ekki alveg sofandi að þessu leyti eins og Ari lætur á sér skilja í skrifum sínum. Undirritaður skrifaði grein þá, sem birt var í Mbl. 15. mars sl., til að leiðrétta ærið hæpna um- fjöllun um FN og FÁS í tímaritinu Þjóðlífi. Það fór fyrir bijóstið á ýmsum í FÁS, að telja mátti að félagið hefði einhver tengsl við félagið Norrænt mannkyn, en því fer fjarri og fyrrum félögum Ára Tryggvasonar í FÁS fínnst furðu- Ragnar Gunnarsson „Tilraunafélagfsmönn- um f lyt ég- enn óskir um að þeim farnist vel, þrátt fyrir kuldaleg skrif þeirra og kveðjur engar.“ legt af honum að tala um ein- hveija sprengingu sem undanfara stofnunar FÁS. Morgunblaðs- greinin getur aftur á móti varla talist neikvæð skrif og óskaði und- irritaður Tilraunafélagsmönnum alls hins besta á þessum vett- vangi. Greinarskrif Ara eru aftur á móti í neikvæðum tón og ber að harma sumt sem skrifað er. Það skal ítrekað að FÁS er al- gjörlega á móti mismunun kyn- þátta og það er ódrengilegt af Ara, einum af stoftiendum FÁS, að bendla félagið við slíkt þó að ekki geri hann það beinum orðum. Helgi Fjeturss hætti sér kannski „á hálan ís“ (eins og Ari segir) í skrifum sínum um kynþætti, því að sumum þykja slík mál viðkvæm og þarf ekki mikið til að misskilja í þeim efnum, en þeir sem grannt lesa sjá að Helgi varar við kyn- þáttafordómum meðal annars í þessari setningu: „ ... þá munu hvítir menn læra að líta öðrum augum hina lituðu frændur sína, og sjá hversu þeir verða að styðja að framsókn þeirra, ef þeir vilja ekki btjóta á móti tilgangi lífsins ...“ Þetta dæmi tekur af öll tvímæli um skoðanir Helga á þessum málum, þrátt fyr- ir að í sumum tilvikum riti hann óvarlega um kynþætti. Brýn þörf er á að minnast þess, að atriði þessi eru lítilvæg í fræð- um Helga. Hið slæma við þessi blaðaskrif undanfarið er að fólk, sem ekki þekkir Nýal, gæti haldið að þjóðernismál séu aðalatriði í ritverki Helga. Því er mjög á ann- an veg farið. Aðalatriði er þetta: Helgj Fjeturss var framúrskarandi vísindamaður og brautryðjandi í jarðfræði, þrátt fyrir skamma starfsævi á því sviði. Hann fékkst við að kanna með aðferðum vísind- anna, að svo miklu leyti sem það var hægt, þann heim sem er flest- um hulinn. Hann áleit sig hafa uppgötvað, að það sem menn hyggja líf í andaheimi sé í raun líf á öðrum hnöttum og að lífsamband sé hnatta á milli. Sofandi maður, sagði hann, fær í draumi samband við vakandi mann sem oftast er íbúi annars hnattar. Margt annað sagði Helgi, sumt stórmerkilegt. Kenningar þessar hafa verið um- deildar en þjóðkunnir menn hafa hrifíst af þeim og skrifað um þær og höfund þeirra. Nefna má menn eins og Ásgeir Ásgeirsson forseta, Jónas Jónsson frá Hriflu, prófessor Magnús Jónsson ráðherra, pró- fessor Guðna Jónsson, Bjarna Jónsson frá Vogi, Árna Óla og skáldin Þorstein Erlingsson, Jakob Jóh. Smára og Jóhannes úr Kötl- um. Stephan G. Stephansson orti til Helga: Ráðinna raka rimum studdan, reistir þú stigann til stjama. Viti, er sér vonar veg-gengt þangað, beinir þú styrkustu stöfum. Gleymum þessu ekki í umræðu um Helga Fjeturss og látum ekki aukaatriði skyggja á það sem verð- ugt er til vegsemda. Tilraunafélagsmönnum flyt ég enn óskir um að þeim famist vel, þrátt fyrir kuldaleg skrif þeirra og kveðjur engar. Yrði ég manna fegn- astur ef sambandstilraunir við framliðna ykjust til muna og kynn- ing á heimspeki Helga Pjeturss og má líta á Tilraunafélagið sem vísi að slíku. Félögin ættu að beina orku sinni í að efla starf sitt í stað þess að vera að hnýta hvort í annað. Höfundur er formaður Félags áhugamanna um stjörnulíffræði. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Strákamir eru að vinna verkefni um fuglalif í Grindavík og nágrenni. Nemendur unnu líkan af bænum sem sett verður upp á sýningunni í dag. Hundrað ár liðin frá því barnafræðsla hófst í Grindavík Grindavík. Á ÞESSU ári eru liðin 100 ár frá þvi að bamafræðsla hófst í Grindavík og var upphaf að reglulegu skólahaldi á staðn- um. Forgöngumaður um bamakennsluna var sr. Oddur V. Gíslason sem var sóknar- prestur í Grindavík 1878—1894 og þjóðkunnur fyrir brautryðj- andastarf í slysavörnum og fleiri menningar- og nytjamál- um. Fyrsti kennarinn var Pétur Guðmundsson sem ættaður var frá Langholti í Flóa. í tilefni af afmælinu verður opnuð mikil sýning í dag í gamla leikfímisalnum á verkum nemenda Grunnskóla Grindavíkur og byijar sýningin á hátíðardagskrá þar sem flutt verða ávörp, hljóðfæraleikur og kórsöngur. Sýningin verður síðan opin yfir helgina og seinni partinn í næstu viku. Að sögn Halldórs Ingvasonar skólastjóra grunnskólans hefur skólinn verið undirlagður alla vikuna í vinnu nemenda að sýningunni sem teng- ist afmæli skólans og Grindavík. Kr.Ben. Grunnskóli Grindavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.