Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 63

Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 63 Minning: Anna Jóhannsdótt- ir Syðra-Garðshorni Fædd 27. apríl 1893 Dáin 14. mars 1988 Mér kemur margt í huga þegar ég sest niður til að minnast sóma- konunnar Önnu Jóhannsdóttur, ömmu konunnar minnar. Fjölmiðlamir segjast gjaman vera með fingurinn á púlsi mannlífsins. Þeir séu þar sem hlut- imir gerast og málin þróast. Allt það, sem manninn varði, sé hægt að lesa um í blöðunum eða heyra og sjá í útvarpi. „Heimsins mikla heljarríma, hljómar í gegnum rúm og tírna," segir skáldið, og íjöl- miðlamir vilja bergmála þann hljóm. En á meðan sú ríma dunaði, bjó hún Anna í dalnum sínum, hugs- aði um mann og böm og las blóm úr hlíðum svarfdælskra fjalla. Og ungur maður, sem horfist í augu við óræða framtíð, spyr: Var það ekki einmitt hún Anna, sem var með fingurinn á slagæð mann- lífsins, var það ekki hún, sem var í takt við hrynjanda tilverunnar? Er heimurinn, eins og hún sá hann, ekki miklu nær því að vera sannur en sú veröld, sem blöðin birta? Anna hafði ekki víða farið um Minning: Halldór Þormar Fæddur 27. júlí 1921 Dáinn 17. mars 1988 Góður bróðir og drengskapar- maður er fallinn. Mig langar að skrifa nokkur orð í kveðjuskyni því margs er að minnast og margt að þakka. Halldór fæddist á Skriðuk- laustri í Fljótsdal N-Múlasýslu þann 27. júlí 1921. Sonur hjón- anna þar. Faðir hans var Sigmar Guttormsson Þormar frá Geita- gerði, sonur Guttorms Vigfússon- ar bónda í Geitagerði og alþingis- manns, og Sigríðar Sigmunds- dóttur frá Ljótsstöðum í Skaga- firði. Móðir Halldórs, Sigríður Halldórsdóttir Þormar, var dóttir Halldórs Benediktssonar bónda á Skriðuklaustri Þórarinssonar prests í Eydölum í Breiðdal, og Ambjargar Sigfúsdóttur. En Sigf- ús faðir Ambjargar bjó á Skriðuk- laustri ásamt konu sinni Jóhönnu Kjerulf frá Brekku í Fljótsdal. Af framansögðu sést að þrír ættliðir bjuggu á Skriðuklaustri hver eftir annan. Á Skriðuklaustri er fagurt yfír að líta, fjallið með sínum sérkenni- Iegu hjallamyndunum sem em eins og risatröppur. En fyrir neðan bæinn breiðir sig sléttlendi sem er framburður Jökulsár í Fljótsdal sem streymir hægan út dalinn og fyllir sífellt meira af framburði í Lagarfljót. í botni dalsins er Múl- inn hár og svipmikill. Frá nesinu blasir Snæfellið við sem er stolt héraðsins. Það þarf engan að undra að Halldór kysi að hvíla í faðmi þessarar sveitar, sem hann hélt alla ævi sína tryggð við, og var óþreytandi að tala um. Halldór ólst upp á Skriðuk- laustri til 18 ára aldurs. Þá fluttum við bræður með foreldmm okkar að Amheiðarstöðum í Fljótsdal og dvöldum þar kringum 5 ár. Síðan lá leiðin til Akraness. Þar vomm við 3 ár og þar næst til Reykjavík- ur, kringum árið 1949. Halldór stundaði leigubflaakst- ur um nokkurt skeið á Litlu bíla- stöðinni og síðan á Hreyfli. 30. desember 1953 gekk Halldór að eiga Unni Eiríksdóttur Kjemlf frá Hamborg í Fljótsdal. Þau ráku um árabil sölutum á Hlemmtorgi. Seinustu árin hafa þau dvalist á Fljótsdalshéraði, fyrst á Strönd í Vallahreppi, síðan á Hofi í Fellum. Unnur reyndist Halldóri frábær lffsfömnautur og bar aldrei neinn skugga á sambúð þeirra. Hún var stoð og stytta í veikindum Hall- dórs seinustu æviárin. Þær vikur sem hann lá á Landspítalanum fylgdist Unnur stöðugt með líðan hans, og var hjá honum síðustu stundimar. Predikarinn segir: „Öllu er afinörkuð stund og sér- hver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Að fæðast hefur sinn tíma, og að deyja hefur sinn tíma.“ Klukkan 5.30 síðdegis þann 17. mars var stundin afmörkuð og hinn fóthvati þjónn sem Jesús seg- ir að muni þrýsta mönnum til veisl- unnar var kominn. Hann tekur engin undanbrögð gild. Halldór var glaðlyndur og spaugsamur og lífgaði upp um- hverfið. Hann var tryggur vinum sínum og eignaðist þá reyndar marga. Eg sakna hans sárt og fínnst ég svo fátækur að ég geti hvergi yndi fest. Að endingu set ég hér vers eftir P. Foersom þýtt af Sveinbimi Egilssyni. Móðir okk- ar kenndi okkur það og vildi að færum með fyrir svefninn: Nú legg ég augun aftur, 6, Guð, þinn náðarkraftur raín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Valgeir Þormar Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hœð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. þennan heim. Samt var hún víðsýnni en margur sá, sem víðför- ull er. Lífið hafði gætt hana mik- illi gæsku, góðu hjartalagi og heil- brigðu gildismati. Hún var nægju- söm kona og vissi hvað manninum var mikilvægast. Tilgerð og yfírborðsmennska, sem svo mjög einkennir okkar tíma, þekktist ekki í hennar fari. Anna Jóhannsdóttir var það sem hún var, íslensk sveitakona, og var bæði sátt og stolt af því hlutskipti. Anna var sannkallað náttúm- bam. Ég minnist myndar af henni við stein einn í fjallinu fyrir ofan Syðra-Garðshom. Þar er Anna í sínu rétta umhverfi. Hún hefur átt ófá spor upp í þetta fjall og er eini fyallgöngugarpurinn, sem ég mun nokkru sinni kannast við. Þau bönd, sem tengdu Önnu við sköpunina rofnuðu aldrei. Aldur- inn færðist yfir, en alltaf var hún létt á fæti og hélt áfram að tína strá úti í móa þó að á tíræðisaldri væri. Anna er ábyggilega einn fárra íslendinga, sem hefur brugð- ið sér á gönguskíði á 90 ára af- mæli sínu. í sumar kom Anna í Ólafsfyörð með okkur hjónunum til að sjá hvemig sonardóttir sín byggi. Hún var hvergi bangin í Múlanum. Við áttum saman notalegan sumar- dag, en að sjálfsögðu mátti ekkert hafa fyrir gömlu konunni frekar en fyrri daginn. Anna var sæl og ljúf kona. Það var dýrmætt að hafa mátt kynn- ast henni og veit ég að margir em Guði þakklátir fyrir það. Blessi hann minningamar um þessa góðu konu. Nú les hún Anna blóm á fram- andi gmndum. Veri hún Guði falin um alla eilífð. Svavar A. Jónsson Elsku amma er dáin. Við systk- inin sáum hana síðast í sumar og haust og þá var hún jafn hress og venjulega. Hún var alveg eins og hún hafði alltaf verið, að vísu hafði heyminni hrakað talsvert frá því hún passaði okkur í Syðra- Garðshomi. Hún var sú brosmilda, glaða og góða amma sem hún hafði alltaf verið. Hún lifði nærri öld. En hversu gömul sem amma varð var ffftn alltaf jafn hress í anda. Aldurinn lagðist ekki þungt á hana, heldur virtist hún njóta lífsins jafnvel og áður. Hún lifði fyrir daginn í dag og hafði lítinn tíma fyrir hið liðna. Við systkinin munum hana best úr sveitinni, úr eldhúsinu heima í Syðra-Garðshomi. Okkur krökk- unum gaf hún kakó í bláu gegnsæju plastglasi og jólaköku, afí fékk bleksterkt kaffi sem hann hellti miklum sykri út í, kettimir á steinunum fyrir utan eldhúj^ gluggann fengu matarleifar o^ veiku lömbin á vorin fengu að vera í eldavélarofninum að hlýja sér. Aldrei sætti amma sig við slát- urtíðina, en lét sig samt hafa það að taka slátur til búdrýginda. Þannig vom andstæðumar í lífí sveitakonunnar. Tíminn heldur áfram sinni óstöðvandi göngu og vinnur á öll- um að lokum, en á sumum vinnur hann seint og með erfiðismunum. Amma var ein af þeim. Við þökk- um henni fyrir samfylgdina þessi ár sem við fengum að eiga með henni. Arni Daniel, Anna Guðrún og Ingólfur. 40 000040 mKSMIBJU úmiA Á SKÓM í ÞÚSUHUmil Opiö frá kl.12til18 Laugardaga frá kl.10 til16 IDNADARMANNAHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.