Morgunblaðið - 26.03.1988, Side 64

Morgunblaðið - 26.03.1988, Side 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 r Minning: Hilmar Arnason ijóndi á Hofi Fæddur 2. október 1910 Dáinn 16. mars 1988 Miðvikudaginn 16. þ.m. andað- ist í Héraðshælinu á Blönduósi Hilmar Árnason bóndi á Hofi. Út- för hans verður gerð frá Hofs- kirlcju. Hilmar var fæddur 2. okt- óber árið 1910 í Víkum á Skaga. Foreldrar hans voru merkishjónin Anna Tómasdóttir og Ámi Guð- mundsson bóndi og trésmíðameist- ari er þar bjuggu. Heimilið í Víkum var mann- margt í uppvexti Hilmars. Systkin- in voru níu er þar uxu úr grasi, auk þeirra vom vinafólk og öldruð ættmenni þeirra hjóna. Allur var búskapur þar umsvifamikill, gang- andi fénaður margur auk þess sem heimilisfaðirinn stundaði smíðar heima og heiman. Ekki mun Hilmar hafa verið gamall þegar hann fór að vinna að búi foreldra sinna og snemma mun hann hafa verið jafnvígur á hirðingu búflár og smíðavinnu. Þannig liðu ungdómsárin að hann vann heima, en með fullorðinsárum fór hann að vinna meira utan heim- ilis. Var þá tíðum við smíðar og ýmis önnur störf. Árið 1935, þann 24. nóvember, gekk Hilmar að eiga eftirlifandi konu sína, Aðalheiði Magnúsdóttur frá Skeggjastöðum. Þau hófu bú- skap á hluta Skeggjastaða og voru þar til vorsins 1937 er þau fluttu Umferðin: Flestir nota bíl- belti og ökuljós í KÖNNUN, sem lögreglan um land allt gerði að beiðni Um- ferðarráðs á notkun bílbelta og ökuljósa kom i'ram, að langflest- ir ökumenn hafa tileinkað sér nýja siði. í þéttbýli voru 88,6% með ljósin kveikt að degi til og í dreifbýli 93,7%. í þéttbýli voru 83% ökumanna með beltin spennt og í dreifbýli 86%. Könnunin var gerð dagana 14.-18. mars. í ljós kom að Grindvíkingar og Vestmannaeying- ar voru manna iðnastir við að nota ljósin og reyndust 98% ökumanna þar fara að settum reglum. Þar á eftir kom Keflavíkurflugvöllur, 96%, Blönduós 95%, Patreksfjörður 94%, Reykjavík 94% og Akranes 93%. í dreifbýli reyndist öllum bif- reiöum ekið með ljósum í nágrenni Blönduóss og Hólmavíkur. 98% bif- reiða í nágrenni Keflavíkur höfðu ljósin kveikt, 96% við Selfoss og álíka margir á Hvolsvelli og í ná- grenni Reykjavíkur. Og þá eru það bílbeltin. Eins og fyrr sagði voru 83% ökumanna í þéttbýli með beltin spennt og 81% farþega í framsæti. Utan þéttbýlis voru 86% ökumanna í beltum, en 87% farþega. Þeir, sem óku um hliðið á Keflavíkurflugvelli þessa daga voru duglegastir við að spenna sig, eða 97% ökumanna og 96% farþega í framsætum. Vestmanney- ingar fylgdu fast á eftir, þar voru 93% ökumanna og 92% farþega í framsætum í beltum. Reykvíkingar eru hins vegar ekki jafn löghlýðnir, því þar voru 83% ökumanna og farþega í framsæti með beltin spennt. Þess skal loks getið, að sekt við því nota ekki bílbelti og aka með ökuljósin slökkt er 2000 krónur. að Víkum. í Víkum bjuggu þau í 7 ár og þar fæddust börn þeirra sem eru: Eiður; Ingunn Anna og Ámý Magnea. Oll eru þau systkin mannvænlegt fólk, sem er gift og á afkomendur. Árið 1944 keyptu þau hjónin Hof og fluttu þangað á fardögum sama ár. Hof er stór og góð jörð, en mun hafa þótt nokkuð dýr á þeirri tíð og það heyrði ég haft eftir öðrum seljandanum að þessi kaup myndu klæða Hilmar úr skyr- tunni. Það fór á annan veg. Nú var hann búinn a fá gott oln- bogarými fyrir meðfæddan stór- hug og athafnasemi. Tók hann fljótt til að endurbæta jörðina bæði með ræktun og húsagerð, ennfremur stóijók hann áhöfn hennar. Þegar á árinu 1946 reisti hann íbúðarhús úr steinsteypu, síðan rak hver framkvæmdin aðra og áður en 10 ár voru liðin hafði hann endurbyggt öll hús á jörðinni úr steinsteypu. Það fannst mér staðfesta vel stórhug Hilmars og framfaravilja þegar hann árið . 1972, þá kominn af léttasta skeiði, braut niður fjárhús, sem hann hafði byggt, og ekki þóttu lengur svara kröfum tímans og byggði önnur með vélgengum kjallara og öðru því er nútíminn krefst. Hilmar lagði sig fram um að nýta vel til afurða bæði búfé og jörð. Hann var alla tíð heyjabóndi og miðlaði oft af forða sínum til þeirra sem komust í fóðurskort og oft mun hann hafa tekið lítið eða ekkert gjald fyrir. Hilmar var mikill garpur til verka. Hef ég ekki séð slíkar ham- farir við að skila áfram verki. Þar fór allt saman, orka í geði, verk- lagni og góðir líkamsburðir. Hilmar sat í sveitarstjómum langt árabil. Hann var tillögugóður og mótuðust tillögur hans af sanngirni og rétt- sýni. Ennfremur var hann í sóknar- nefnd og hlúði mjög að málefnum kirkjunnar og þegar unnið var að endurbótum og viðhaldi hennar gaf hann ævinlega alla sína vinnu. Auk þess gáfu þau hjón Hofskirkju oft stórar gjafír. Hof stendur við þjóðbraut þvera og var oft sem allra leiðir lægju þangað. Þar voru haldnir flestir fundir sem til gátu fallið í litlu sveitarfélagi. Jafnan veittu þau hjón kaffi á messudögum, einnig var siður við jarðarfarir að fá hús- næði á Hofí til veitinga og léði þá húsmóðirin borð- og húsbúnað og aðstoðaði sjálf við veitingar. Meðan farskóli starfaði léðu þau hjón skólanum húsnæði um árabil og tóku kennarann í fæði og hús- næði. Á meðan ferðast var á hest- um var það venja okkar utan Króksbjargs, er við áttum leið í kaupstað, að koma við á Hofí. Var þá þeginn beini fyrir menn og skepnur og oft notið gistingar. Veittu þau hjón þetta allt af mestu rausn og alúð Hilmari fylgdi alltaf hressandi blær og yfír honum var reisn og höfðingsskapur. Hann var einn sterkasti burðarás lítils sveitarfé- lags um langa hríð. Er honum margt að þakka og margt mátti af honum læra. Hann hafði fast- mótaðan lífsstíl, sem hann fylgdi eftir af fullri einurð þegar honum fannst við þurfa og var þá sama hver í hlut átti. Oft fann ég koma fram hjá hon- um þegar hann ræddi um fyrir- liggjandi verkefni að framtíðar- draumur hans vagri að verk hans mættu standa sem lengst og að óbomir gætu notið þeirra, en um verkalaun að kveldi spurði hann ekki. Vel minnist ég þess er ég kom í fyrsta sinn til Hilmars til að innheimta útsvar, sem var hátt, og hafði ég orð á. Viðbrögð hans voru að hann sagði á þá leið að ekki væri nema sjálfsagt að greiða til samfélagsins, kannski á maður eftir að leita til þess, en að það framlag sé sem jafnast er líklega stærri vandinn. Þetta svar fínnst mér lýsa honum betur en langt mál. Þau hjón áttu því láni að fagna nú á síðari árum að bamaböm þeirra dvöldust á heimili þeirra yfir sumartímann, sum í mörg sumur. Nú allra síðustu árin voru langafa- og langömmubömin einn- ig tíðir gestir, sem var þeim óblandin ánægja og sólargeisli. Síðustu árin átti Hilmar við van- heilsu að stríða, sem hann bar af hugprýði og karlmennsku. Hygg ég að hann hafí þráð umskiptin. Aðalheiður var honum traustur lífsfömnautur, stóð við hlið honum í amstri daganna af hógværð og festu þar til yfír lauk. Að henni sækir nú sár söknuður þegar lífsförunauturinn er burt kallaður, en hún yljar sér við góðar minning- ar og góð samskipti við böm sín og bamaböm og fulla trú á endur- fundum. Við hjónin óskum henni styrks í trú sinni og blessunar Guðs um ókomin ár, um leið og við vottum henni og bömum þeirra samúð okkar. Á þessari kveðjustund er okkur efst í huga ánægjulegar minningar um löng og góð kynni við Hilmar, sem við þökkum af heilum hug. Blessuð sé minning hans. María og Sveinn, Tjörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu lfnubili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.