Morgunblaðið - 26.03.1988, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 26.03.1988, Qupperneq 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 l'lP HFI44I Kannanir ráða ferðinni Daginn eftir að Skapafiur á himni (.Made in Heaven") var prufusýnd ákveðnum hópi áhorfenda til að kanna viðbrögð þeirra við henni, settist leikstjóri hennar, Alan Rud- olph, niður með kannanafræðing- um, markaðsráðgjöfum og fram- kvæmdastjórum frá Lorimar Mot- ion Pictures vopnuðum niðurstöð- um áhorfendakönnunarinnar. Sam- kvæmt henni voru áhorfendur — sem valdir höfðu verið eftir kyni, aldri og áhuga á kvikmyndum — ekki með samband Timothy Hutt- ons og Kelly McGillis á hreinu en þau hittast á himnum, verða ást- fangin og finna svo hvort annað aftur á jörðinni. „Mundu að þú verður að ná til hvers einasta bjána í salnum," var sagt við Rudolph og hann svaraði: „En hvers vegna útvegið þið ekki gáfaðri áhorfendur?" Nokkrum prufusýningum seinna hafði Skap- aður á himni gengið í gegnum svo margar endurklippingar að leik- Roxanne. stjórinn íhugaði að láta ekki bendla sig við hana. Og þrátt fyrir alla fyrir- höfnina kolféll myndin þegar hún var frumsýnd sl. vetur. Prufusýningar hafa verið í gangi í Hollywood árum saman en eftir því sem myndirnar verða dýrari í framleiðslu og dreifingu hafa áhorf- endakannanir tekið æ meiri völd af hinni skapandi tilfinningu sem myndir spretta af. Fáum myndum er breytt eins stórkostlega og Hættulegum kynn- um („Fatal Attraction") en eftir prufusýningar var endir hennar endurtekinn og í honum var hinni undir háskólanám, svokallað AP- próf. Allir nemendurnir ná en niður- stöðurnar eru dregnar í efa af próf- höldurunum sem trúa ekki sínum eigin augum. Hápunkturinn sem á eftir fylgir er eins spennandi og hver annar þriller, stendur í News- week. Leikarinn Edward James Olmos gerbreytti útliti sínu fyrir hlutverk Escalantes í myndinni. Hann gerði þaö sem kamelljóniö Robert De Niro hefur verið frægastur fyrir hingað til; fitaði sig um 20 kíló og fórnaði þykku hárinu fyrir skalla. Hann fylgdist einnig grannt með Escalante í vinnunni. Escalante er 57 ára, fæddur í Bólivíu og er orðinn þjóðsögn í Garfield-skólanum. Aðeins tvö pró- sent menntaskólanema í Banda- ríkjunum reyna við hið erfiöa AP- próf á ári en æ fleiri Escalante- nemar taka og standast prófið. „Það eina sem krakkarnir þurfa að koma með í tímana er ganas segir Escalante en það er orð sem mikið heyrist í myndinni og þýðir þrá. illu Glenn Close komið á annað til- verustig. En allar myndir stóru ver- anna í Hollywood hin síðustu ár, frá endurgerðum eins og Þrír menn og barn („Three Men and að Baby") til „School Daze", tónlistar-gaman- myndar eftir Spike Lee, hafa geng- ið í gegnum áhorfendakannanir fyr- ir dreifingu. Lee kiippti t.d. út söng- atriði í „Daze" eftir að áhorfendur á prufusýningu höfðu hlegið að því að tilefnislausu. Heiti mynda, leikur stjarnanna, auglýsingaveggspjöld og útdráttur til kynningar („trailers") geta veriö og eru yfirleitt sett í könnun áður en til dreifingar kemur. Prufusýn- ingar standa í miklum blóma en þær vekja sömu efasemdir og pólitískar skoðanakannanir t.d. Er hægt að draga áreiðanlega dóma af könnun- inni? Er hægt að bæta gengi mynda eftir áhorfendakannanir? Ef svörin við spurningunum eru jákvæð með tilliti til Skapaður á himni má benda á að martröðin sem Rudolph gekk í gegnum á sér tvær hliðar, draumurinn rætist með áhorfendakönnunum og seðlarnir raðast í bankann. Gínan- („Mannequin") er mynd um búðar- loku í stórri verslun sem ástfanginn verður af gínu sem lifnar við í búðar- glugganum — saga sem hlýtur- aö„ná til hvers einasta bjána í saln- um“. Vinsældirnar sem Gínan naut í Bandaríkjunum voru úthugsaðar og þær má að stórum hluta þakka Jos- eph Farrell, en fyrirtæki hans hefur gert áhorfendakannanir í Holly- wood í áratug. Stjarnan í myndinni, Andrew McCarthy, er ekki stórt nafn en kannanir frá hans fyrri myndum sýndu að hann höfðaði til yngri kvikmyndahúsagesta, sérs- taklega unglingsstelpna. Þegar prufusýningargestir kvörtuðu yfir því að fyrsti þriðjungur Gínunnar væri langdreginn, voru ný atriði tekin í snatri og hraður tónlistar- myndbandskafli settur inní. Það má næstum heyra andvörpin í tán- ingsstúlkunum þegar McCarthy leitar sér árangurslaust að vinnu undir dynjandi tónlistinni og þau andvörp hljóma eins og skrjáf í seðl- um í eyrum kvikmyndaframleiðend- anna. Fyrirtækin sem framkvæma kannanirnar og kvikmyndaverin sem láta gera þær vilja fátt eitt segja um hvernig prufusýningar fara fram en það er lítiö dularfullt við það. Starfsmenn stöðva fólk á götum úti, við verslanir eða nálægt Þegar stæröf ræðin er tekin með í reikninginn Þekkið þið hann? Olmos (til vinstri) og Escalante. Lou Diam- ond Phillips (fyrir miðju) f sfnu fyrsta hlutverki f rá því hann lék í „La Bamba“. kvikmyndahúsum, og spyrja ein- faldrar spurningar: Langar þig að sjá Jeff Bridges og Jane Fonda í nýjum rómantískum þriller? Þegar sýningu myndarinnar er lokifi fylla allir áhorfendur út blað með spurningum um allt er varðar myndina. Er farið of hratt yfir sögu? Of hægt? Mátulega? Síðan sitja 25 til 30 áhorfendur eftir og taka þátt í umræðum. Hver er uppáhaldsper- sóna þín í myndinni? Hvern líkar þér síst við? Framleiöendur, leikstjórar og yfirmenn kvikmyndaveranna kalla þetta ferli „tæki" til að meta mynd- ina. En mörgum leikstjóranum þykja niðurstöðurnar ráða alltof miklu og raunar einráða, venjulega vegna mikilvægustu spurningarinnar á blaöinu: Mundir þú mæla með þessari mynd? Leikstjórinn Gene Saks segir frá því hvernig síðasta mynd hans, „Brighton Beach Memoirs" kom út í þeirri spurningu. f New York sögðu 84 prósent prufusýningargesta að þeim líkaði betur við hana „en flestar aðrar myndir" og 79 prósent í Los Ange- les. En þau svör komu frá eldra fólki sem líkast til var jákvæðara gagnvart gamanmynd sem gerist á fjórða áratugnum en aðrir hópar. Á meðal yngri áhorfenda á Löngu- strönd í Kaliforníu féll talan oní 50 prósent. Sú „óspennandi" niður- staða hafði mestu áhrifin á dreif- ingaraðilann, Universal Pictures. „Hræðsla við að setja fé í sölu á myndinni og auglýsingar greip um sig," sagði Saks og myndin gerði litla lukku peningalega séð. Daniel Melnick, sem framleidd- i„Roxanne“ prufusýndi hina róm- antísku gamanmynd með Steve Martin til að vita hvort brandararn- ir í henni hittu í mark. En hann hefur áhyggjur af prufusýningum eins og margir aðrir kvikmynda- gerðarmenn. Kannanirnar geta „gert bíómyndirnar að formúlum sem útiloka allt nema það sem fjöldanum hentar. Hættan er sú, eins og með öll meðöl, að of stór skammtur getur drepið." Þið, sem horfið alltaf á „Miami Vice" (Undirheimar Miami), þekkið mætavel leikarann Edward James Olmos þótt þið vitið kannski ekki að hann heitir það. Hann leikur yfir- mann þeirra Johnsons og Philips og tekur hendurnar helst ekki úr vösunum, hörkulegt andlitið er fros- ið eins og lambakjötið frá ’86 og hann segir ekki margt eins og hann fái sektir fari hann yfir 60 orð á klst. Já, þið kannist við hann. Sá hefur aldeilis skipt um gervi. Hann er óþekkjanlegur í nýrri bíómynd í Bandaríkjunum sem hann slær í gegn í eða hver hefði trúað því að þetta væri hann þarna til vinstri á meðfylgjandi mynd með skalla og gleraugu? Á myndinni er hann í gervi stærð- fræðikennara og maðurinn sem hann heldur utan um er maðurinn sem hann leikur, Jaime Escalante. Það varð Ijóst eftir hinar miklu vinsældir „La Bamba" aö fleiri myndir með efnivið úr lífi spænsk- ættaðra Ameríkana yrðu gerðar. „Stand and Deliver" er ein af þeim en hún hefur verið lengur en svo í bígerð þótt með annað aðalhlut- verkiö í henni fari stjarnan úr „La Bamba", Lou Diamond Phillips. Árið 1983 las leikstjórinn Ramon Menendez frétt í Los Angeles Ti- mes um stærðfræðikennarann Jamie Escalante sem unnið hafði hreinustu kraftaverk í stærðfræði- kennslu í menntaskólanum sínum. Menendez sá þarna efni í kvikmynd og eftir nánari athuganir, handrits- gerð og venjubundnar neitanir kvik- myndaveranna er útkoman bíó- mynd sem þykir jafnvel meira í var- ið en „La Bamba" og hefur hlotið mjög lofsamlega dóma vestra. Þegar Escalante (Olmos) kemur í Garfield-menntaskólann, sem spænskættaðir unglingar sækja, að kenna tölvufræði sér hann engar tölvur. Það sem hann sér er frum- skógur; yfirfullar kennslustofur, eit- urlyf, skemmdarverk og leikfimi- kennarar sem kenna stærðfræði. Escalante tekur að sér afi kenna reikning en viðhorfið er þetta: „Ég þarf ekki á stærðfræöi aö halda, ég á sólarknúna tölvu." En Escalante talar mál ungling- anna, ekki bara spænsku heldur götumállýskuna. Hann veit hvernig hann á að meðhöndla götuklíkurnar í skólanum, gera grín að töffaralát- unum og höfðar til menningararf- leifðar þeirra. Um síðir kveikja krakkarnir á perunni og læra stærö- fræði af kappi undir dyggri leiðsögn Escalantes sem lætur þau þreyta sérlega erfitt próf sem undirbúning Veisla Babette Norðrið heimtaróskarinn Norðurlandamyndirgera það gott í Bandaríkjunum Þrjár myndir, sín frá hverju Norðurlandanna, hafa að undan- förnu verið að gera það gott í Bandarikjunum (að sjálfsögðu hefur engin þeirra verið sýnd hér). Frá Noregi er Leiðsögumaðurinn með okkar eigin ágæta leikara og leikstjóra Helga Skúlasyni í einu af aðalhlutverkunum, en hún var ein af fimm myndum sem tilnefnd- ar voru til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin á siðasta ári, eins og alþjóð veit; frá Svíþjóð Líf mitt sem hundur (eða bara Hundalíf) en það var vinsælasta erlenda myndin vestra á síðasta ári og er tilnefnd til Óskarsins; frá Danmörku Veisla Babette ( leik- stjórn Gabriel Axel en myndin er gerð eftir einni af smásögum Isak Dinesen og hefur hlotiö afbragðs- góða dóma gagnrýnenda. Hún hefur líka verið tilnefnd til Óskars- ins. „Skrifaðu um mat," ráðlagði vinur Dinesen henni þegar hún var einu sinni peningaþurfi og ætlaði að reyna fyrir sér á hinum bandariska timaritamarkaði. „Bandaríkjamenn eru gagnteknir af mat." Afrakstur þessara orða varð fyrsta smásaga Dinesen og loks bíómyndin Veisla Babette eftir henni, gerð á sfðasta ári. Handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar er Gabriel Axel („Amour") en sögusviðið er af- skekkt nítjándualdar þorp á Jót- landi. Hin táknræna saga líkir matargerðinni og matráðskon- unni við listina og listamanninn. Hún segir frá hinni frönsku Ba- bette Hersant (Stépane Audran) og þótt nafn hennar sé i heiti myndarinnar kemur hún ekki fram fyrr en um miðbik hennar. Og jafn- Glanzelius hinn ungi f Hundalífi. vel þá er hún ( hálfgerðu dular- gervi. Hún er einfaldlega kynnt sem flóttamaður frá Frakklandi eftir uppreisnina í París árið 1871 er leitar hælis á Jótlandi. í 14 ár vinnur hún kauplaust, möglunar- laust og næstum mállaus sem matráðskona tveggja aldraðra systra (Birgitte Federspiel og Bo- dil Kjer), sem veita henni skjól. Systurnar eru dætur predikara með óvenjulegar trúarskoðanir. Þegar hann deyr halda þau minn- ingu hans uppi með þvi að halda hirðinni hans saman. Og síðar kemur í Ijós að Babette er ( raun- inni meistarakokkur frá París og undirbýr sitt meistaraverk fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.