Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
83
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ..
Hvað með barnið
eftir
að það fæðist?
Kæri Velvakandi.
Ég hringi vegna frumvarps um
fóstureyðingar sem liggur fyrir á
Alþingi. Mér er það hugleikið
vegna eigin reynslu, en ég var
17 ára þegar ég átti mitt fyrsta
og eina bam og fóstureyðing kom
þá til greina. I þessu frumvarpi
er sagt að líf sem kviknar í móður-
kviði sé heilagt. Þama finnst mér
skorta nokkuð yfirsýn og þá þeg-
ar um óskilgetin böm er að ræða.
Hvað með baraið þegar það er svo
fætt? Þá virðist það ekki vera
heilagt lengur. Er eitthvað frum-
varp á þingi sem kveður á um
a.m.k. helmings ábyrgð föður, en
ætla mætti að málið varðaði þá
ekki síður en mæðumar. Er eitt-
hvað frumvarp fyrirliggjandi sem
skyldar sveitarfélögin að hafa
nægilegt dagvistanými? Ekki
held ég það, þess vegna hygg ég
að hér sé mikil tvöfeldni á ferð-
inni.
Kona sem varð ein-
stæð móðir 17 ára.
Skrýtnar mótsagnir
Húmi hringdi og sagðist fremur
undrandi á hinu mikla fylgi sem
Kvennalistinn hefur samkvæmt
nýrri skoðanakönnun DV. Húmi
sagði: „Kvennalistinn kennir sig
mikið við félagshyggju, en slíkur
listi var um líkt leyti að tapa í
háskólakosningum. Svo er einnig
sagt að kvennaflokkurinn hafi
fengið mikið fylgi vegna óánægju
fólks með ríkisstjómina. Samt
fékk stjómin meira fylgi í þessari
könnun en í þeirri næstu á undan.
Undarlegt að tama . ..“
Vegna skrífa um
Austfirðing'
Síminn hringdi og þessi orð
voru sögð: „Maðurinn sem skrif-
aði f Velvakanda og var óhress
með fréttir af Austfirðingi er beð-
inn að skríða fram úr skúmaskoti
sínu og gefa sig fram. Hringja í
síma 61164 eða 61158 og ræða
við mig, Svein Auðbergsson, afa
drengsins."
Tapaði veski
Ungur maður hringdi og sagð-
ist hafa tapað gráu seðlaveski
fyrir utan Hótel Borg laugardags-
kvöldið 20. mars. Hann heitir
fundarlaunum og er í sfma 32180.
Kvikmynd um fjarhrif
Þar sem hin rétta stefna lífsins er lengra á veg komin, munu fjar-
hrifin vera öllum [jós og í raun hinn máttugasti fjarmiðill milli
mannkynja hinna ýmsu hnatta.
Til er kvikmynd sem heitir She-
ena (mætti nota kvenmannsnafnið
Sína á fslensku). Þetta er ævintýra-
leg mynd og er látin gerast í Afríku.
Sína er einskonar ókrýnd drottning
yfir gresjum og frumskógum á sínu
landsvæði og er ákveðin að veija
þjóð sína og villt dýr merkurinnar
fyrir aðsteðjandi hættum, sem hún
veit, að yfir vofa.
Hún býr yfir furðulegum 5ar_
hrifamætti. Með flarhrifum getur
hún haft áhrif á einstök dýr og
dýrahjarðir svo að þau hlýða henni,
hvort heldur til að leita sér skjóls
eða til að hjálpa fólki hennar. Á
sama hátt getur hún haft ljaráhrif
á vini sína, og bjargað þjóðflokki
sínum undan illskeyttri árás óvina,
sem ágimast ákveðinn málm, sem
þama er að fínna í fjalli einu á
hennar yfirráðasvæði.
Margt er fagurt og hugnæmt í
mynd þessari, en merkilegast það,
sem snýr að fjarhrifunum. Vegna
þeirra em dýrin og mennimir nán-
ast sem ein heild. Bæði menn og
dýr bera slfkan kærleika og hjálp-
fýsi í bijósti hvert til annars. Hugs-
un eins getur borist að flarhrifaleið-
um til allra annarra. Verði einhver
einn var við einhveija hættu, getur
hann þegar gert öðmm aðvart með
þessum hætti. En drottningin sjálf,
Sína, skynjar allar aðstæður nær
og fjær í iandi sínu, fyrir fjarhrifa-
boð frá þegnum sfnum, mönnum
og dýmm, og tekst með eigin fjar-
hrifamætti að stjóma öllum þannig,
að komist verði frá bráðri hættu,
og bregðast við á réttan hátt. Sjálf
verður hún einnig að leggja sig í
hina mestu Iffshættu til að bjarga
fólki sfnu, en með hjálp þess og
dýranna tekst loks að yfirvinna
aðsteðjandi ógnir.
Óvenjulegt mun vera að þessi
þáttur tilvemnnar, fjarhrifín, sé
gerður að viðfangsefni í kvikmynd,
enda líklega flestir á þeirri skoðun
að slíkt afl sé ekki til.
Hitt mun þó sönnu nær, að §ar-
hrifamátturinn er eitt af undir-
stöðuatríðum tilvemnnar, þótt við
jarðarmenn kunnum enn lítt með
að fara.
En f öðmm stöðum alheims, þar
sem hin rétta stefna lífsins er lengra
á veg komin, munu flarhrifin vera
öllum ljós og f raun hinn máttug-
asti flarmiðill, ekki aðeins milli
manna á einhveijum hnetti heldur
einnig og ekki sfst á milli mann-
kjmja hinna ýmsu hnatta. Sam-
skipti að fjarhrifaleiðum munu vera
algeng mjög á milli byggðra hnatta
öllum til farsældar. Fjarlægðir
munu þar engin hindmn vera.
Jafnvel heimsóknir milli hnatta
munu algengar vera, hjá framfara-
mannkynjum og koma hamfarir
þar til sögunnar, en þær munu að
sjálfeögðu vera einn þáttur §ar-
hrifanna frá einum huga til annars.
Sambandseðli lffeins mun vera sá
þáttur tilverunnar, sem í sér felur
lausnir allra örðugleika.
Ingvar Agnarsson
Söngvakeppnin
hneyksli út í gegn
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættínum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur tíl —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga tíl föstudaga, ef þeir
koma þvf ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptmgar,
fyrirspumir og frásagnir, auk
pistía og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni tíl þáttar-
ins, þó að höfundur óaki nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því tíl lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir látí
niwn hlut ekki eftir liggja hér f
dálkunum.
Kæri Velvakandi.
Ég verð að segja að ég er afar
hneyksluð á þessarí söngvakeppni
sem alltaf setur allt á annan endann
hér á landi. Við emm fátæk þjóð
og Rfkisútvarpið er að manni skilst
févana, samt er flanað út í þessa
keppni sem er ekkert nema kostn-
aðurinn og peningaausturinn. En
það sem sló mig kannski mest þama
á mánudagskvöldið var að það
skyldi vera boðið upp á vín í sjón-
varpssal og þama stóð fólkið fyrir
framan alþjóð reykjandi og drekk-
andi. Ég veit ekki betur en það sé
hreinlega bannað. Eða hvað?
Við þetta vildi ég bæta, að verð-
launin em að mínu viti alltof há.
Og að lokum. Það var til háborinn-
ar skammar hvemig þessi piltur
sem sigraði veittist að fyrri sigur-
lögum og rakkaði þau niður sem
mest hann mátti. Finnst mér það
ekki lofa góðu um framhaldið þegar
til Dyflinnar kemur.
Húsmóðir í Hlíðunum
Fermingarúrin
KARL LAGERFELD
RARIS
Yfir 500 gerðir af úrum
verð frá kr. 2.000.-
P
pierre cardin
paris
Kaupin eru best, þar sem þjónustan er mést
dcft cg Cskap
Laugavegi 70 - Sími: 2 49 30
Delma - Seiko - Citizen - Orient - Casio - Pierpoint
PIANOLEIKARINN
TONY KAYV
Toný leikur fyrir
matargesti og skemmtir
bar á 4.11«^ >.uocicu 10.
P
Sigtún 38, 105 Reykjavik Sími 689000
v"