Fjölnir - 02.01.1835, Side 14

Fjölnir - 02.01.1835, Side 14
110 er það líka, sem enn er óljóst í æfisögn jarðarinnar, því þessi vísindagreín er ennþá mjög í bernsku, og fer Jressi árin so óðum fram, að valla mun Iíða lángt um, áður enn hón verði búin að fá annað fegra útlit. Áður enn Jengra er farið, verð eg samt að svara eínni mótsögn, sem eg er hræddur um inörg- um skynsömum rnanni rnuni detta í hug að gjöra mer; því eg býst við menn segi, það se ekki var- legt, að tala nm hvað jörðin se furðulega gömul, og þessháttar ransóknir geti orðið hættulegar fyrir trúna, |m' af biblíunni geti hvur maður sjeð, að jörðin se ekki fullra 6 Jnisund ára, og J»aráofan se hún öll sköpuð á 6 dögum; enn ransóknir jarð- fræðínganna og nýstárlegu uppgötvanir leíði til áliktana, sem seu gagnstæðar ritníngarinnar orðum, og komist menn so í bobba sem ekki verði greítt úr ineð nokkru móti, og Jiað se ekki trútt um, að in óbifanlega nauðsyn og eýlífu lög, sem náttúru- fræðin sýni að heímurinn liafi hlotið að mindast eptir, og æfinlega viðhaldist, geti leítt til guðsafneít- unar. Enn þessu er augvan veginn so varið. Ritn- íngin segir, að í upphafi skapaði guð himin og jörð, og því mun aungvum koma í hug að neíta; enn hún talar ekkert um, hvunær upphaf tímans hafi verið, eður hvað við liafi borið frá upphafi, og til þess tímabils, þá jörðin var eýði og tóm, og guð let Jjós- ið skína í myrkrununi, og greíndi vötnin að frá þur- lendinu, so lnín yrði byggileg að nýu. Öllum lærð- um guðfræðíngum ber nú líka saman um, að frá-

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.