Fjölnir - 02.01.1835, Side 62

Fjölnir - 02.01.1835, Side 62
158 f I fyrstunni var þessi hugrenníng ekki meír’ enn hvur önnur hugrenníng, enn þegar eg sat sona með snælduna mína, rann hún mer í huga ósjálfrátt aptur og aptur, og so sökkti eg mer niður í þetta, að eg sá sjálfa inig skrúðbúna, og riddara ogkónga- sjni kríngum mig. J>egar eg hafði gleýmt mer sona, varð eg reglulega hrigg, |)egar eg leít upp aptur, og íánkaði við mer íkotinu. }>egar eg var að verki mínu, skipti kellíugin ser ekki neítt af mer. Eínn dag fór húsmóðir mín aptur að heíman, og sngði mer, að hún inundi í þetta sinn verða burtu lengur enn vant væri, eg skjldi nú hafa gott gát á \ öllu og láta mer ekki leíðast. Eg var eínhvurnveg- inn hálf-hnuggin þegar eg kvaddi hana, því mer fannst eínsog eg mundi ekki sjá hana aptur. Eg horfði lengi á eptir henni, og vissi ekki sjálf, hvurs- vegna eg var so hrædd; J>að var næstum eínsog eg sæi fyrirætlun mína, án þess eg vissi það greínilega. Aldreí hafði eg stundað betur seppann og fugl- inn, og verið eíns natin við }>á; mer var annara um þá enn vant var. }>egar kellíngin var búin að vera nokkra daga að heíman, fór eg eínusinni á fætur í þeím fasta ásetníngi að fara með fuglinn úr kotinu, og leíta að þessari sokölluðu veröld. Mer var |)úngt og þraungt um hjartað, inig lángaði til að vera þar kyr, og þó hafði eg andstygð á að hugsa til þess; það var undarleg barátta í sálu minni, eínsog tveír gagnstæðir andar væru þar að eígast við. Annað veífið Jvótti mer so yndæl kyrðin og eínveran, og

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.