Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Síða 51
RÚNASTEINAR OG JVtANNFRÆÐI
51
5. Rúnasteinn frá Húsafelli. Þjms. 80. Bæksted bls. 102-105.
Hér hvílir ívar ValgarSsson, sveinn, og annar Ari(?),
sem gu<$ þeira sál hafi.
1 ágripi af máldaga Húsafellskirkju, sem er ódagsettur, en í forn-
bréfasafni er talinn undir árinu 1472, er nefndur síra Valgarður,
sem „tók aftur staðinn". Föðurnafns hans er að vísu ekki getið, en
vegna ofangreindrar áletrunar verður ekki hjá því komizt að ætla,
að hér sé um að ræða síra Valgarð ívarsson, sem er vottur í Kal-
manstungu 1. október 1468 þegar Sumarliði Eiríksson festi sér til
eiginkonu Guðrúnu dóttur Árna bónda í Kalmanstungu sonar Jóns
þess Gilssonar, sem hér síðar verður getið.
Ef menn hugsa sér, að Ivar Valgarðsson, sem áletrunin á við, sé
sonur síra Valgarðs ívarssonar, sem vel má vera er svo sjaldgæf nöfn
eru saman, er tímasetningin um 1470 mjög sennileg svo sem haft er
eítir Finni Jónssyni, sem raunar telur ívar hafa verið son þessa síra
Valgarðs. Ef nafnið Ari er rétt lesið gæti hann auðvitað einnig verið
sonur síra Valgarðs.
6. Rúnasteinn frá Kalmanstungu, Þjms. 15015, kom í safnið 1951,
sjá Kristján Eldjárn: Hundrað ár í Þjóðminjasafni, nr. 89 (sjá einn-
ig Bæksted bls. 106).
Hér Kvílir Jón Gilsson Finnssonar. Les þú eina paternoster
fyrir hans sál.
Jón Gilsson.
Það er að öllum líkindum árið 1380, sem Gils Finnsson giftir Járn-
gerði dóttur sína Þórði syni Bessa Brandssonar. Hjúskaparkaupin
fóru fram á Reynistað í Skagafirði. Bessi gaf syni sínum jörðina
Eyvindarstaði í Blöndudal, en Gils dóttur sinni Hamra í Reykjadal
(þ. e. Reykholtsdal) (D.I. III, 351-352). Árið 1384 er Gils Finnsson
meðal votta í Deildartungu í Borgarfirði er Árni Gunnlaugsson sel-
ur Hauki Finnssyni jörðina Skáney í Reykholtsdal fyrir Hamra í
Reykholtsdal, sömu jörðina sem Gils hafði afhent dóttur sinni í með-
gjöf fjórum árum áður (D.I. III, 376). Með því að Gils og Haukur
bera sama föðurnafn og hafa með fárra ára millibili eignarhald á