Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Blaðsíða 72
72
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Vegna þess hve Björn var auðugrar ættar hefur það verið talið
líklegast, að Sigríður Hrafnsdóttir, kona hans, hafi verið dóttir
Hrafns lögmanns Guðmundssonar, af því að það kemur svo vel
heim við stað og tíma, en engin bein heimild er fyrir því. Síðari kona
Björns var Snjófríður Björnsdóttir, sem fyrr hafði átt Þorstein
svart Höskuldsson og verið síðari kona hans. Fyrri kona Þorsteins
svarts var Vigdís Árnadóttir, sem ætla má, að áletrunin á Munka-
þverársteininum eigi við. Björn átti óskilgetinn son, Sigurð, sem fyrr
bjó á Svalbarði á Svalbarðsströnd, en síðar á Kálfanesi í Steingríms-
firði. Sá Sigurður átti skilgetinn son, Björn, sem hann vildi telja
erfingja föðurföður síns, sem virðist þó ekki hafa orðið, a. m. k. ekki
einkaerfingi, og getur það ekki hafa verið af öðrum ástæðum en
þeim, að skilgetin dóttir eða skilgetinn dóttursonur Björns Sæmunds-
sonar af skilgetinni dóttur kominn hafi einnig verið til, með því
að annars hefði Björn Sigurðsson orðið einkaerfingi afa síns. Björn
Sæmundsson og Snjófríður áttu ekki börn saman, en Björn hlýtur
að hafa átt skilgetna dóttur, sem annaðhvort sjálf hefur orðið erfingi
föður síns eða skilgetinn sonur hennar, ef hún var dáin. Hvort var,
er erfitt að skera úr um nú með vissu, en sú dóttir hefði átt að vera
dóttir Sigríðar Hrafnsdóttur af því að menn þekkja ekki með vissu
aðra fyrri konu Björns Sæmundssonar. Svo virðist sem dóttursonur
Björns hafi verið Steinn Snorrason, sem átti hálft Svalbarð á sínum
tíma og ætti hann þá að hafa verið dóttursonur Sigríðar Hrafns-
dóttur. Steinn dó án þess að eiga arfbæra niðja, með því að bræð-
ur hans, samfeðra en ekki sammæðra, erfðu hann, og kunna menn
nú ekki að rekja frekara frá Sigríði Hrafnsdóttur.
Rétt er að lokum að vekja athygli á ætta- og tengdaböndunum á
milli margra þeirra, sem hér hafa verið nefndir. Vigfús Magnússon
og Bjarni Eiríksson voru systkinasynir. Gils Jónsson var sonur Jóns
Gilssonar í Kalmanstungu. Tómas Brandsson var móðurfaðir Tómas-
ar Ólafssonar. Vigdís Árnadóttir og Sigríður Hrafnsdóttir voru
tengdar. Báðar voru þær langömmusystur Tómasar Brandssonar,
ef rétt er tilgetið um ætt hans.
Þegar höggvið var á legsteina yfir það fólk, sem nefnt hefur verið,
eru rúnirnar auðvitað fyrir löngu horfnar sem almennt tjáningar-
tæki, og ef þær voru höggnar á legsteina í stað venjulegs þeirra
tíma leturs mætti ætla, að það hafi verið af nokkurri fordild, en
einnig af því, að rúnaletrið var miklu betur til þess fallið að vera