Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Blaðsíða 66
66
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Sigmundur Guðmundsson
er meðal presta í dómi á Helgastöðum í Reykjadal 11. júní 1380.
(D.I. III, 352). Prestur með sama nafni er meðal úttektarmanna á
Grenjaðarstöðum 29. maí 1391 og er afhendingarskráin skrifuð á
sama stað 27. febrúar 1393. Það þarf ekki að vera sami prestur, sem
vottar á Hólum í Hjaltadal 12. júní 1430 um veitingu Grenjaðar-
staða, en þó gæti það verið. Fleira er ekki kunnugt um Sigmund
prest Guðmundsson á þessum tímum. Hann gæti vel hafa verið bróðir
Hjalta, einkum væri það ekki ólíklegt, ef hinn síðastnefndi Sigmundur
prestur er ekki hinn sami sem þeir eða sá, sem nefndur er fyrir 1400.
29. Rúnaletur á frægum stól frá Grund í Eyjafirði. Þjms. 10925.
Bæksted bls. 158-166.
Hústrú Þórunn á stólinn,
en Benedikt Narfa ....
Aldrei hefur verið talinn vafi leika á því, að hústrú Þórunn sé
Þórunn Jónsdóttir á Grund, dóttir Jóns biskups Arasonar. Einnig
er vafalaust talið, að Benedikt Narfason sé sá, sem gerði stólinn og
það, sem vantar aftan á áletrunina, hafi skýrt frá því ( . . . son gerSi,
eða eitthvað þvíumlíkt).
Benedikt Narfason
þekkja menn úr skjölum. Hinn 7. janúar 1495, á Skinnastöðum í Axar-
firði, sem síra Einar Benediktsson, síðar ábóti á Munkaþverá hélt þá,
seldi Narfi Benediktsson síra Einari til fullrar eignar hálfa jörð-
ina Grindur á Höfðaströnd, 20 hundruð, gegn því að síra Einar
lofaði „að sér að taka til lærdóms og uppfæðis Benedikt son títtnefnds
Narfa og láta vígja hann til messudjákns etc.“ (D.I. VII, 235-236).
Benedikt þessi ætti um þetta leyti að vera svo sem 15 ára og vera
fæddur nálægt 1480. Skömmu síðar á sama ári, 1495, selur síra Einar
Benediktsson síra Finnboga syni sínum alla jörðina Grindur á Höfða-
strönd og hefur hann því átt hálfa jörðina fyrir. (D.I. VII, 253-254).
Þetta vekur sterkan grun um það, að þeir kunni að hafa verið bræð-
ur Narfi og síra Einar og hafi átt sinn helminginn hvor í Grindum
í arf, og eykur það á gruninn að síra Einar tekur helming jarðarinn-
ar Grindur af Narfa fyrir 20 hundruð, en öll jörðin var einungis 30
hundruð að fornu mati.
Einar Benediktsson varð ábóti á Munkaþverá 1496 og er enn á