Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Síða 67
RÚNASTEINAR OG MANNFRÆÐI
67
lífi 21. apríl 1524. Fylgikona hans var Guðrún, óskilgetin dóttir Torfa
hirðstjóra Arasonar, og var sonur þeirra Finnbogi, sem ábóti varð
á Munkaþverá eftir föður sinn, móðurfaðir síra Einars í Heydölum
Sigurðssonar. Hvort sem Benedikt Narfason hefur hlotið vígslu eða
ekki er mjög sennilegt, að hann hafi verið í skjóli frænda sinna í
Eyjafirði.
Narfi er fyrst nefndur í fornskjölum sem dómsmaður á Ljósa-
vatni í Bárðardal 30. janúar 1477. (D. I. VI, 101). 17. maí 1483 er
hann meðal kaupvotta í Hafrafellstungu í Axarfirði og var síra
Einar Benediktsson forsagnarvottur fyrir kaupunum. (D.I. VI, 508).
Enn er hann kaupvottur í Skriðu í Skriðuhverfi í Reykjadal 4.október
1489 (D.I. VI, 686) og25. ágúst 1502 á Skinnastöðum. (D.I. VII, 619).
30. Rúnasteinn frá Munkaþverá í Eyjafirði. Þjms. 5629. Bæksted
bls. 166-170.
(Hér hvílir) Vigdís Árnadóttir, guS friíSi hennar
sal, er hennar ártííS tveim nóttum fyrir
Mar(íumessu fyrri) eða (síSari).
Kona með nafni því, sem á steininum er, er kunn úr ættabókum,
og skal nú gerð grein fyrir henni.
Vigdís Árnadóttir.
Þorsteinn Höskuldsson, sem var sonur Höskuldar Runólfssonar
Sturlusonar, er einn votta að kaupmála Þorsteins Magnússonar og
Ölafar Árnadóttur gerðum á Munkaþverá í Eyjafirði 23. apríl 1427,
og hann undirritar kaupmálabréfið á Grund í Eyjafirði 7. jan. 1428.
(D.I. IV, 345). 30. júní 1431 er hann vottur að því á Þingvelli, að
þeir höfðu jarðakaup Björn Sæmundsson og síra Þorkell Ólafsson,
og bréf um þau kaup undirritar hann á Munkaþverá 1. maí 1432.
(D.I. IV, 458). Hann vottar önnur kaup, sem fram fóru á Þingvelli
s. d. og bréf fyrir þeim kaupum undirritar hann á Grund í Eyja-
firði 5. nóv. s. á. (D.I. IV, 459). 6. ágúst 1433 er hann í dómi Hrafns
lögmanns Guðmundssonar á Hálsi í Fnjóskadal. (D.I. IV, 507). 1.
okt. 1432 vottar hann á Möðruvöllum í Eyjafirði um löggjöf Lofts
Guttormssonar til Sumarliða sonar hans (D. I. IV, 516), og sama haust
er hann meðal skiptavotta eftir Loft. (D.I. IV, 519). 15. marz 1434
vottar hann jarðakaup á Núpufelli í Eyjafirði. (D.I. IV, 537). 7.