Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 121

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 121
ÞRlR ATGEIRAR 121 svo að myndast líkt og sigðaregg eða bjúgt blað, sem endar í oddi, og frá honum mælist 16,5 sm aftur á bakka. Þetta bjúgblað eða krókur myndar mótvægi við fleininn bakkamegin og verður klauf eða skarð á milli þeirra. Öðru megin á miðju blaði er innsleginn stimpill, verksmiðjumerki eða smiðsmerki; það er um 12 mm langt, skörðótt báðum megin, er nánast eins og þrír samhangandi deplar. Á atgeir þessum hefur verið sívalt skaft, gert úr nátturlegri greni- renglu, sem þó er dálítið flött á tvo vegu næst höfðinu, því að þar liggja járnbönd eða spengur upp eftir skaftinu, þ. e. upp frá egg og bakka, 34 sm; þau eru um 15-17 mm á breidd og eru (eða hafa verið) negld með þremur nöglum hvorum megin. Skaftið er í fjórum pörtum nú og ekki alveg öruggt, hversu langt það hefur verið. Upp frá höfði er 62 sm langur bútur heill, en síðan koma þrír bútar, sem að öllum líkindum eru úr skaftinu, en til samans eru allir fjórir bút- arnir 182 sm, og verður þá lengd vopnsins alls, höfuð og skaft, 233 sm. Litlar leðurpjötlur sýna að leður hefur verið haft til að festa skaftendann í falnum. B. (5. mynd). Þessi atgeir er líkari C en A að því leyti, að á hon- um er líkt og axarblað öðrum megin, en krókur hinum megin (þýzkur atgcir, sjá síðar). Hins vegar minnir hann meira á A að því leyti, að fram úr honum gengur ferstrendur fleinn, en ekki fjöður. Að lokum er hann svo hvorugum líkur um það atriði, að fleinninn er ekki í beinu framhaldi af falnum, heldur lítið eitt til hliðar og þá um leið ekki alveg samhliða skaftinu, heldur stefnir nokkuð út frá skaftlínunni. Lengd atgeirshöfuðsins alls er 45,5 sm. Falopið er ferskeytt og lítið eitt aflangt, utan um það er myndarleg gjörð úr messingu (eða einhverjum koparblendingi) með hátt upphleyptum kambi eftir miðju allt umhverfis. Gjörðin er 4,3x4,6 sm að utanmáli, breidd hennar 1,4 sm. Gjörð þessi er nú brotin frá, og sést, að spengurnar, sem gengið hafa upp eftir skaftinu á þessum atgeir eins og hinum, hafa verið vel festar (soðnar?) við falopið undir gjörðinni. Gegnum fal- inn, uppi á blaðinu gengur geirnagli, sem sést í brotsári skaftend- ans upp í falnum. Eins og þegar er sagt, er fleinninn eða broddurinn ekki beint fram af falnum. Fram af blaði er slegin flöt tunga, en fram af henni 24 sm langur ferstrendur fleinn, mjög reglulega smíðaður og biturlegur. Til annarrar handar við falinn er svo axarblað með hyrnum, sem nú eru báðar brotnar og önnur týnd, hin aftari. Verður því ekki til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.