Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Qupperneq 140
140
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Sýningar og aSsókn.
Safnið var opið á sömu tímum og verið hefur undanfarin ár, á
hverjum degi yfir sumarmánuðina frá kl. 13,30-16,00, en mánuðina
janúar-maí og frá miðjum september til desember annan hvern
virkan dag og sunnudaga á sama tíma. Safngestir á árinu voru alls
39.368, og eru þá meðtaldir ferðamannahópar, er komu á vegum
Loftleiða, en vegna mikillar fjölgunar áningarfarþega koma slíkir
hópar nú oftastnær tvisvar á dag, fyrir og eftir hádegi.
Auk hinna skráðu gesta koma svo ævinlega margir, sem fá að
skoða safnið utan hins eiginlega sýningartíma, ef sérstaklega stendur
á, og að auki voru reglulegar skólaheimsóknir í safnið fyrri hluta árs-
ins eins og áður undir leiðsögn Hjörleifs Sigurðssonar listmálara.
Síðara hluta ársins féllu þessar reglulegu heimsóknir niður, en marg-
ar bekkjardeildir barna- og gagnfræðaskóla komu þó í safnið, bæði á
sýningartíma og utan hans.
Safnið efndi sjálft til einnar sýningar á árinu, í sambandi við
Listahátíð 1970. Nefndist hún Tólf listamenn fyrri alda og var opnuð
í Bogasal 20. júní og stóð til ágústloka. Voru þar sýnd ýmis listaverk
íslenzkra málara á 17. og 18. og 19. öld, bæði sjálflærðra og þeirra,
er numið höfðu málaralist. Voru einkum á sýningunni altaristöflur
og mannamyndir.
Sýningin þótti takast vel og var gerður að henni góður rómur.
Sóttu sýninguna alls um 12.000 manns, en aðgangur var ókeypis.
Bogasalur var að öðru leyti leigður til listsýninga og annarra sýn-
inga, svo sem verið hefur, og voru sýningar þar þessar:
Sýning á ísbirni, Grímseyjarbirninum, o. fl. heimskautadýrum,
haldin á vegum Náttúrugripasafns Húsavíkur, 10.-25. jan.
Guðbjartur Guðlaugsson, málverkasýning, 21. febr.-l. marz.
Kristján Davíðsson, málverkasýning, 18.-26. apríl.
Katrín Ágústsdóttir, batik, 16.-24. maí.
Alfreð Flóki, teikningar, 29. ágúst-6. sept.
Matthea Jónsdóttir, málverkasýning, 3.-11. okt.
Ásgrímssafn, sýning á nýviðgerðum málverkum, 24. okt.-l. nóv.
Ágúst Petersen, málverkasýning, 7.-15. nóv.
Þorlákur Haldorsen, málverkasýning, 21.-30. nóv.
Einar Baldvinsson, málverkasýning, 5.-13. des.
Aðsókn að þessum sýningum var mjög misjöfn, mest að ísbjarnar-
sýningunni og sýningu Ásgrímssafns. Nokkuð var um það, að pant-