Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Side 147

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Side 147
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1970 147 kirkjunni í Kirkjuvogi í Höfnum og gerði sér því ferð þangað. Þar er timburkirkja með kór og forkirkju, reist af Vilhjálmi Hákonar- syni 1859, mjög gott og smekklegt hús í upphafi. Búið var að rífa þiljur og grind innan úr kirkjunni að mestu leyti, en grindin var gerfúin, einkum vegna þess að kirkjan hafði verið múrhúðuð utan fyrir löngu og við það hafa viðirnir feygzt. Var nú ætlunin að steypa eða hlaða veggi innan við múrhúðunina, en því fékkst til leiðar komið, að Þjóðminjasafnið fengi Hörð Ágústsson skólastjóra og Þorstein Gunnarsson arkitekt til að segja fyrir um viðgerð hússins, þar eð ófært þótti að spilla því með handahófsviðgerð. Kostaði safnið vinnu- laun þeirra. Þá átti þjóðminjavörður bréfaskipti og viðræður við sóknarnefnd Auðkúlusóknar um hina sérkennilegu kirkju að Auðkúlu, sem er átt- strend og með turn á miðju þaki. Var kirkjan orðin mjög hrörleg er þjóðminjavörður skoðaði hana sl. sumar, enda hefur henni lítið verið gert til góða í langan tíma. Kirkjan er hins vegar mjög skemmtilega smíðuð í upphafi og sérkennileg og hefur alla tíð vakið mikla athygli þeirra, sem um veginn fara hjá Auðkúlu. Mæltist þjóðminjavörður til, að gert yrði við kirkjuna og hún látin standa framvegis, ef á annað borð yrði höfð kirkja á Auðkúlu framvegis. Bar þessi málaleitan þann árangur, að sóknarbúar ákváðu að fara að tilmælum þessum og gera við gömlu kirkjuna, en þar skall þó hurð nærri hælum að þessi skemmtilega kirkja væri rifin, því að búið var að teikna nýja kirkju á staðnum. Þjóðminjasafnið mun leggja á ráð um viðgerðina, sem væntanlega hefst að vori. Viðbúið er þó, að flytja þurfi kirkjuna á annan stað, þar eð útihús hafa verið byggð svo að segja fast upp að henni og kirkjustæðinu stórspillt og er sú ráðstöfun skipulagsyfir- valda nánast sagt óskiljanleg á stað þar sem nóg rými var til allra átta fyrir slíkar byggingar. Hörður Ágústsson veitti á vegum safnsins leiðbeiningu um litaval á húsið Laufásveg 52, hið gamla hús Eyvindar Árnasonar líkkistu- smiðs, sem nýlega hefur verið gert við hið ytra og er eitt hið prýði- legasta af gömlu húsunum í Þingholtunum. Húsafriðunarnefnd. Á öndverðu árinu skipaði menntamálaráðherra í húsafriðunar- nefnd, og er þjóðminjavörður formaður hennar skv. lögum, en aðrir eru Páll Líndal borgarlögmaður, skv. tilnefningu Samb. ísl. sveitar- félaga, Hannes Kr. Davíðsson arkitekt, skv. tilnefningu Bandalags
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.