Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 149

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 149
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1970 149 ins og fór hann eina ferð þangað vestur á árinu. Safnið er nú komið í gott horf og sómir sér vel. Um haustið var gamla kirkjan á Svalbarði við Eyjafjörð flutt á lóð Minjasafnsins á Akureyri og sett niður á þann stað sem Akureyr- arkirkja stóð um nær aldarskeið. Kirkjuna reisti Þorsteinn Daníels- son á Skipalóni árið 1846 og þótt hún sé að vísu ekki meðal merkustu kirkna er hann reisti, er hún þó prýðisgott dæmi um látlausa timbur- kirkju frá þessum tíma. Kirkjan þarfnast allmikillar aðgerðar, sem væntanlega verður unnt að koma í kring á næsta ári. Við byggðasafnið 1 Skógum var lokið að mestu uppsetningu bað- stofunnar frá Arnarhóli í Landeyjum, sem fyrr hefur verið skýrt frá. Er hún reist við hlið skemmunnar frá Varmahlíð og er hug- myndin að koma þar smám saman upp eftirgerð gamals bæjar, sem verður settur saman af raunverulegum bæjarhúsum af safnsvæðinu, eftir því sem unnt verður að komast yfir þau. í Vestmannaeyjum var hafizt handa um byggingu stórs safnhúss fyrir byggðasafn og bókasafn eyjanna. Verður það mjög rúmgott hús og mikil bót fyrir byggðasafnið, sem er nú í þröngu bráðabirgða- húsnæði. Á Selfossi var hafinn undirbúningur að stækkun safnahússins, sem orðið er ailtof lítið, ekki sízt eftir að safninu barst mikið safn út- skurðargripa. Verður stækkun hússins væntanlega framkvæmd í áföngum. Önnur byggðasöfn störfuðu á sama hátt og á undanförnum árum en tölur um aðsókn liggja ekki fyrir. Ásu Wright fyrirlestur. Svo sem skýrt hefur verið frá áður stofnaði frú Ása Guðmunds- dóttir Wright minningarsjóð við Þjóðminjasafnið, sem hefur það markmið að bjóða hingað einum erlendum fyrirlesara árlega. Fyrsti fyrirlesari sjóðsins var Hákon Christie starfsmaður þjóðminjavörzl- unnar norsku, en hann dvaldist hér við rannsóknirnar í Skálholti og hafði umsjón með þeim að hluta. Flutti hann fyrirlestur sinn í Árnagarði 16. marz 1970 og nefndist liann Stavkirkene i bygningshistorisk sammenheng, en Hákon Christie hefur um langt skeið unnið að rannsóknum á stafkirkjum. Fyrirlest- urinn var síðan prentaður, eins og gert er ráð fyrir í skipulags- skránni. Með Hákon Christie dvaldist hér kona hans Sigrid, og fór þjóðminjavörður með þeim austur í Skálholt, þar sem Hákon hafði verið við rannsóknir 15 árum áður.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.