Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Side 151
FRÁ FORNLEIFAFÉLAGINU
AÐALFUNDUR 1970
Aðalfundur hins íslenzka fornleifafélags 1970 var haldinn í fornaldarsal Þjóð-
minjasafns íslands hinn 25. nóvember 1970 og hófst kl. 20,30.
Formaður félagsins, prófessor Jón Steffensen, setti fundinn og minntist þeirra
félaga, sem látizt hafa, síðan síðasti aðalfundur var haldinn, en þeir eru þessir:
Áki Pétursson fulltrúi, Rvk., Árni Pálsson verkfræðingur Rvk., Ársæll Sigurðs-
son skólastjóri, Rvk., Bína Kristjánsson frú, Rvk., Guðmundur L. Hannesson,
fyrrv. bæjarfógeti, Rvk., Robert W. McKnight, Pennsylvaníu, Bandaríkjunum,
Magnús Gíslason, fyrrv. skrifstofustjóri, Rvk., og Þórarinn Sveinsson læknir,
Rvk. Risu fundarmenn úr sætum í virðingarskyni við hina látnu.
Formaður gat þess, að frá síðasta aðalfundi hefðu 25 nýir félagar bætzt í hóp
félagsmanna og væru nú félagar 733 samtals, þar af 1 heiðursfélagi, 17 ævifélag-
ar, 614 ársfélagar og 101 skiptafélagi.
Þá gat formaður þess, að stjórn félagsins hefði komið sér saman um að
leggja til, að frú Ása Guðmundsdóttir Wright verði kjörin heiðursfélagi í Forn-
leifafélaginu. Þennan heiður vildi stjórnin, að félagið sýndi henni fyrir miklar
og góðar gjafir í gripum til Þjóðminjasafnsins, en þó einkum fyrir að stofna
Minningarsjóðinn, sem til þess á að vera, að Þjóðminjasafnið geti boðið heim
erlendum fornleifafræðingum til þess að halda hér fyrirlestra, sem síðan verða
prentaðir sem ritröð. Lagði formaður fram fyrsta hefti þessara fyrirlestra í
próförk, fyrirlestur Hákonar Christie um stafkirkjur. Tillaga stjórnarinnar var
samþykkt einróma.
Féhirðir félagsins, Gísli Gestsson safnvörður, las reikninga félagsins fyrir
árið 1969. Höfðu þeir verið endurskoðaðir og undirritaðir.
Skrifari félagsins, dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands, minntist á verkefni
félagsins og hvatti fundarmenn til að efla Fornleifafélagið og Árbók þess með
því að útvega nýja félaga. Hann gat þess, að Árbók 1970 væri væntanleg upp
úr áramótum að venju.
Þá flutti dr. Kristján Eldjárn erindi um fornleifarannsóknir próf. Lee við
Ungava-flóa nyrzt á Marklandi, og sýndi skuggamyndir til skýringar.
Nokkrar umræður urðu um erindið. Fleira gerðist ekki. Fundi slitið.
Jón Steffensen.
Þórhallur Vilmundarson.