Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1885, Qupperneq 123
255
Um haustið 1884 kom sendiherra frá Timbúktú til St.Louis
og fór þaðan til Parísar til þess að gera verzlunarsamninga
við stjórnina; eru töluverðar líkur til þess, að verzlunar-
leiðin frá Timbúktú breytist framvegis; áður hafa úlfalda-
lestirnar þaðan farið norður yfir Sahara til Marocco; nú
eru Frakkar vongóðir um, að vöruflutningar frá upplendi
álfunnar við Niger til Senegal aukist að miklum mun.
Frakkneskir ferðamenn (t. d. Bayol, Colin, Lenoir o. fl.),
hafa gert töluverðar rannsóknir nú hin síðustu árin í
löndunum við upptökiu á Senegal og Gambia.
Nokkru áður en Niger fellur í sjó, rennur í hana áin
Benué að austan, mikið vatnsfall og skipgeng. Fyrir sunn-
an ána er-stórt ríki, sem heitir Adamaua. þýzkur maður,
að nafni E. B. Flegel, hefir nú hin seinustu ár verið að
rannsaka þetta ríki og ána Benue, og tókst honum að
finna upptök fljótsins; segir hann, að þar muni verða greið-
ur vegur fyrir verzlunina eptir ánni; hefir hann eggjað
þjóðverja á að nema þar lönd, og hafa menn gert góðan
róm að máli hans; 12. apr. 1885 fór hann á stað af nýju
suður þangað, ágætlega útbúinn. Flegel hefir með sér gufu-
hát, sem má taka í sundur og bera; 4 náttúrufræðingar eru
í för með honum. í Hamborg’ hefir verið stofnað allmikið
verzlunarfélag, til þess að ryðja verzluninni brautir á ánum
Niger og Benué. — Kamerúm-fjöll eru eldbrunninn fjalla-
klasi upp af Biafra-flóanum, rúm 14,000 fet á hæð; hafa
jpjóðverjar kastað eign sinni á ströndina og reka þarverzl-
un við fbúana; landið er frjóvsamt þar í kring, en loptslag
mjög óheilnæmt. Af ferðamönnum, sem eru að rannsaka
þessi lönd, má helzt nefna Rogozinski.
Hvergi héfir nú þessi seinni ár verið jafnmikið starfað
eins og'í löndunum fram með Kongó. Stanley rannsakaði,
sem kunnugt er, fyrstur farveg Kongó-fljótsins, og sýndi
þar frábæran dugnað og þolgæði í mannraunum, svo óhætt
er að telja hann eitt hið mesta hraustmenni á þessari öld.
Hefir Stanley síðan gengið í þjónustu Belgíukonungs, og
hefir mi í 5 ár verið að friða löndin við Kongó, leggja vegi,