Réttur - 01.10.1934, Qupperneq 57
Margar sveitir borgaravarðliðs og árásarliðs gáfust
upp. Við höfum lýst yfir afnámi einkaeignaréttar
á framleiðslutækjum. Veitingar áfengra drykkja
voru bannaðar. Vélbyssuherdeild, sem kom frá
Leon, var gersigruð í Campomanes, eftir harðan
bardaga. Síðan á mánudag hefir að staðaldri verið
varpað á stöðvar okkar sprengjum úr loftinu. Tvær
flugvélar tókst okkur að skjóta til jarðar með vél-
byssum. Liðssveitir Ochoa hershöfðingja, sem réðust
inn í Aviles, hófu skothríð á íbúðir verkamanna og*
myrtu konur og börn hinna þekktustu byltingaleið-
toga. Ochoa náði Aviles á vald sitt, en áræddi þó
ekki að hætta sér inn í hin innri hverfi borgarinnar.
Konur berjast eins og hetjur í fremstu röðum. Við
höfum látið lausa fanga úr öreigastétt, og fangelsin
hjá okkur eru full af kapítalistum, sem við höldum
sem gíslum. Lögreglumenn þá, sem gefizt hafa upp,
höfum við afvopnað og látum þá vinna að ýmsum
vélfræðilegum störfum, svo sem vopnaviðgerðum.
Við höfum varalið og hergögn, sem ættu að geta
enzt okkur í þrjá mánuði. Okkur er kunnugt ástand-
ið í öðrum héruðum Spánar fyrir tilstilli loftskeyt-
anna. En þó að ykkur takist ekki að koma í veg fyr-
ir, að öllum kröftum afturhaldsins verði einbeitt
gegn Astúríu, gefumst við ekki upp“.
Þegar hersveitir fasistastjórnarinnar réðust inn í
borgir og þorp Astúríu, byrjaði tímabil hinna djöful-
legustu ofsókna og hryðjuverka, sem naumast verður
líkt við nokkuð annað en fólskuverk þýzku nazistanna
eftir valdatöku Hitlers. Þessi nýlenduher fór um hér-
uðin rænandi, brennandi og myrðandi. Flugvélar ger-
eyddu heilum þorpum með sprengikúlum og eiturgasi.
Uppreisnarmenn voru bókstaflega brytjaðir niður,
hvar sem til þeirra náðist, börnum og gamalmennum
var ekki hlíft, konur voru svívirtar og sýktar af hin-
um barbarisku leikusveitum. Og hin heilögu sakra-
menti kirkjunnar fylgdu vandölunum á ferð þeirra.
153