Andvari - 01.01.1980, Qupperneq 20
18
JÓN JÓNSSON
ANDVARI
Ölafur Thors, sem þá var sjávarútvegsráðherra, hafði snör handtök, og
tækið, sem kostaði 900 þús. kr. og þótti dýrt, var sett um horð í varðskipið
Ægi árið 1953. Það var af brezkri gerð, kallað Whalefinder, enda endur-
'hannað til þess að leita hvala í Suðurishafi. Með því var hægt að sjá
lárétt út frá skipinu 1500 metra í allar áttir, og má nærri geta, hve mjög
þetta jók á alla möguleika að finna síldina, enda gerbreytti þetta tæki og
þau sem á eftir komu í veiðiskipin allri veiðitækni. Má nefna sem dæmi,
að síldveiði Islendinga tífaldaðist á árunum 1953-1965, og réðu fiskriti og
kraftblökk þar mestu um.
Varðskipð Ægir var síðan meir og meir notað til síldarleitar, og 1954
var komið þar fyrir rannsóknastofu og aðstæður allar til gagnatöku endur-
bættar.
Arið 1950 kom varðskipið „María Júlía“ til landsins, en það er smíðað
bæði sem varðskip og rannsóknaskip. Var allgóð aðstaða um borð, þótt
þröngt væri. M. a. hafði skipið fullkominn búnað til togveiða, og var
því um mikla framför að ræða, þar eð ekki var hægt að nota Ægi til
togveiða.
Hafrannsóknir verða ekki stundaðar skynsamlega, nema til komi víð-
tæk alþjóðasamvinna, og af þeim sökum var Alþjóðahafrannsóknaráðið
sett á stofn árið 1902, eins og að framan greinir. Hér er um að ræða ein
elztu og virðulegustu alþjóðasamtök í heiminum, og hafa þau haft ómælda
þýðingu fyrir þekkingu okkar á hafinu og lífríki þess. Alþjóðahafrann-
sóknaráðið hefur verið ráðgjafi Evrópuþjóða um fiskveiðar og fiskvernd
á mörgum undanförnum árum; það gefur árlega út skýrslur um fiskveið-
ar meðlimaríkjanna og fjölmargar ritraðir um sjórannsóknir og fiskirann-
sóknir.
Til skamms tíma var það til húsa í gamalli höll í Charlottenlund rétt
norðan við Kaupmannahöfn, er danska ríkisstjórnin lét því í té. Það heldur
aðalfund sinn einu sinni á ári, en auk þess eru starfandi fjölmargar vinnu-
nefndir um hin margvíslegustu málefni. A aðalfundinum eru lagðar frarn
skýrslur um ástand nytjastofna á svæðinu, og einnig er gerð grein fyrir
fjölmörgum öðrum rannsóknum varðandi hafið.
Island gerðist meðlimur í Alþjóðahafrannsóknaráðinu árið 1938, og
var Árni annar af fulltrúum íslands frá byrjun og fram til ársins 1953,
sat alla fundi þess, svo og fjölmarga aðra alþjóðafundi um fiskveiðar og
fiskvernd. Hann var formaður í síldarnefnd ráðsins árin 1950-1953 og