Andvari - 01.01.1985, Blaðsíða 85
ANDVARI
83
JÓNAS JÓNSSON OG MENNINGARSJÓÐUR
Samkoma í tilefni 30 ára afmælis Menntamálaráðs 1958.
Fremri röð: Helgi Sœmunclsson, Jónas Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason.
Aftari röð: Birgir Thorlacius, Gils Guðmundsson, Magnús Kjartansson, Vilhjálmur Þ.
Gíslason, Haukur Snorrason, Birgir Kjaran.
séra Matthíasar Jochumssonar og hinnar ríku þarfar hans til að
bregða sér utan til andlegrar hressingar og þeirra erfiðleika, sem
hann og margir aðrir íslenskir hugsjónamenn hafa orðið að yfirstíga
til að geta fullnægt eðlilegri útþrá. (Andvari 1960)
Til dæmis um þennan þátt starfsemi Menntamálaráðs skal skýrt frá út-
hlutun ókeypis farseðla árið 1930. Auglýst var eftir umsóknum og gerð
grein fvrir meginreglum sem giltu við afgreiðslu þeirra. Alls bárust 130
umsóknir. Var þeim skipt í sex flokka, og hlutu ókeypis far, ýmist aðra leið
eða báðar, tólf stúdentar og kandídatar, fjórtán skáld og listamenn, átta
iðnaðarmenn, tólf barnakennarar, fimm aðrir kennarar og þrettán úr ýnts-
um starfsgreinum, alls 64 menn. „Auk þess var ákveðið að láta ríkisstjórn-
ina fá til umráða tíu ókeypis för fram og aftur á 1. farrými."
F.ins og tekjustofnum Menningarsjóðs var háttað, mátti gera ráð fvrir því
að árstekjurnar yrðu næsta breytilegar. Fyrstu fimm árin reyndust þær all-
verulegar og síst minni en búist hafði verið við. En árið 1933 duttu tekjurn-