Andvari - 01.01.1985, Blaðsíða 33
ANDVARI
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
31
notað var til ölgerðar og malurtar sem notuð var til lækninga. Svo ný
voru þessi í'ræði þá af nálinni, að sumar ritgerðir sem hann studdist við
í frjógreiningunni voru nýútkomnar en aðrar í prentun. í framhaldi af
þessu kannaði Sigurður sögu kornræktar á íslandi, út frá örnefnum og
verzlunarskýrslum, og kemst að þeirri niðurstöðu að kornrækt liafi
lagzt af á Norður- og Austurlandi fyrir lok 12. aldar og dregið mjög úr
henni í öðrum landshlutum á 13. og 14. öld. Hins vegar heldur hann
því fram, að við sunnanverðan Faxaflóa hafi kornrækt verið stunduð
til loka 16. aldar.
í annan stað fann Sigurður viðarkolalag, 1 til 2 sm þykkt, í sniðum
sínum kringum rústir í Pjórsárdal. Sams konar lag fann hann víðar í
fornum rústum, á Isleifsstöðum í Borgarfírði sumarið 1939 og við
eyðibæinn Þórarinsstaði á Hrunamannaafrétt sumarið 1945. Kolalög
þessi rakti hann til sviðningar landnámsmanna, sem þannig liefðu
hreinsað birkikjarrið kringum bæi sína í þeim tilgangi að bæta gras-
lendi. Yrnis örnefni, svo sem Brennigerði og Sviðholt, bentu og til hins
sama. Yfirlit yfir sviðningu í Skandinavíu og á Bretlandseyjum benti til
þess, að sú aðferð, sem hér var notuð á landnámsöld, og alveg lagðist
af fyrir 1200, hafi á þeim tíma helzt verið við lýði í austanverðri
Skandinavíu, Svíþjóð og Finnlandi. Væri það í samræmi við kenningar
Barða Guðmundssonar um austur-norræna hlutdeild í landnámi Is-
lendinga.
Doktorsritgerð Sigurðar fjallar þannig jöfnum höndum um eldfjalla-
sögu og sögu íslendinga, enda átti hann eftir að klappa þann steininn
löngum síðan. Sagnfræðilegar niðurstöður hennar birti hann síðan á
íslenzku í greinasafninu Skrafað og skrifað (1948), í ritgerðunum „Frjó-
línuritið frá Skallakoti" og „Sviðning á íslandi til forna“, en með þeim
lauk afskiptum hans af frjókornagreiningu, sem hafði verið upphafleg-
ur tilgangur öskulaga- og mýrarannsókna hans hér, undir áhrifum von
Posts. Öskulögin voru orðin tilgangur í sjálfum sér.
XIII
Sigurður komst heim til íslands í febrúar 1945, með llugvél til Bret-
lands og þaðan sjóleiðis heim. Urðu þeir samskipa frá Skotlandi hann
og Þorbjörn Sigurgeirsson eðlisfræðingur. Var skipalestin æði stór í
fyrstu og varin mörgum herskipum, en áður en varði hélt meginflotinn
áfram til Ameríku, en þrjú skip í fylgd tveggja herskipa fóru til Islands.
Kafbátahernaður Þjóðverja var þá enn í algleymingi. Lá jafnan þýzkur
kafbátur undan Reykjanesi og sendi skipum tundurskeyti, og hafði