Andvari - 01.01.1985, Blaðsíða 38
36
SIGURÐUR STEINÞÓRSSON
ANDVARI
tækist, væri fengin næsta einstæð þekking á merkilegu, virku eld-
fjalli, því ekki er mér kunnugt um neitt hliðstætt eldfjall, sem um
sé vitað með vissu, hvenær það hefur gosið síðustu þúsund árin,
og hvaða öskulag hvert gos þess myndaði. En þetta var þó ekki
eina markmið þessara rannsókna. Það þykir tilhlýðilegt, að kann-
aður sé sem bezt æviferill hvers þess manns, sem markað hefur
spor í sögu lands okkar. En Hekla hefur einnig verið okkur ör-
lagavaldur. Saga hennar er snar þáttur í þúsund ára sögu barátt-
unnar við óblíð náttúruöfl, sögu sem mér virðist sagnfræðingar
okkar hafa sniðgengið helzt til mikið. Tímasett öskulög eru einn-
ig mjög gagnleg fornleifafræðingum og þeim, sem rannsaka vilja
sögu jarðvegs og gróðurs í landinu.30
Heklugosið 1947/48 stóð í 13 mánuði, en meðallengd Heklugosa
taldi Sigurður vera um eitt ár. Á svo löngum tíma gafst ráðrúm til
ýmissa rannsókna, en jafnframt voru nú komnir allmargir menn til
skjalanna sem gátu rannsakað hina ýmsu þætti gossins, jarðfræðingar,
jarðeðlisfræðingar, efnafræðingar og h'ffræðingar. Vísindafélag ís-
landinga gaf út safnrit á ensku um Heklurannsóknirnar í fímm
bindum, og voru Trausti Einarsson, Guðmundur Kjartansson og Sig-
urður Þórarinsson ritstjórar. Sigurður skrifaði íjórar ritgerðir í safnrit
þetta, alls um 300 bls., og lýsti ein þeirra aðdraganda og upphafí goss-
ins (1949), önnur öskufallinu fyrsta daginn (1954), hin þriðja gangi
gossins (1976) en hin fjórða og mesta lýsir gossögu Heklu frá upphafi
íslandsbyggðar í ljósi ritaðra heimilda og gjóskulagafræði. Er það bók-
in The eruptions of Hekla in historical times. A tephrochronological study
(1967) sem ári síðar kom út á íslenzku undir nafninu Heklueldar. Þar er
tekið saman allt sem vitað er um eld í Heklu til gossins 1693, en um síð-
ari gos er gefíð yfirlit, enda of mikið til af rituðum heimildum til þess
að hægt væri að tíunda það allt.
XV
Heklueldar eru lykilrit að gossögu Heklu og að gjóskulagatímatali ís-
lands fram að þeim tíma - Hekla gaus bæði 1970 og 1980 eftir að bókin
kom út, og Sigurður átti eftir að bæta enn við Heklurannsóknir sínar.
Honum taldist til að síðan fímmta goshrina Heklu eftir ísöld hófst árið
1104 væri gosið 1947 hið 14. í röðinni, en Þorvaldur Thoroddsen haíði
í eldgosasögu sinni Die Geschichte der islandischen Vulkane talið gosið
1845 vera hið 18. í röðinni, og allar erlendar fræðibækur tekið það upp