Andvari - 01.01.1985, Blaðsíða 11
ANDVARI
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
9
þetta. Sagt hefur verið að það taki sinn tíma að finna saumnál í
heysátu. En Sigurði Þórarinssyni tókst á stuttri dagstund að fínna
saumnál í sjöhundruð ára gömlum ruslahaug.'
En hinn prúðbúni og gítarspilandi farþegi á þilfarinu forðum sýndi
líka aðra hlið á Sigurði Þórarinssyni, sem var jafnheima í glöðum
veizlusal og að pjakka í mógröf. Halldór Laxness lagði út af þessu í lít-
illi grein í afmælisritinu Eldur er í norðri, sem Sögufélag gaf út í tilefni
af sjötugsafmæli Sigurðar 1982. Þar segir:
Skemtilegri mann en Sigurð, og meiri prýði í gestastofu, hef ég
fáa vitað; og eins þótt honum liggi ekki hátt rómur. Leingi hafði
mér orðið starsýnt á hálsbindi hans slegið úr smíðuðu silfri, en
þegar ég spurði hvar fáist svona hálsbindi, hló hann við og sagði
„hvergi“. Þessi fínbygði hámentamaður, ólíklegur til þrekrauna,
og ég hafði staðið að því í samkvæmum að hafa á valdi sínu
manna fjölbreyttasta skrá af glaðværum gítarssaungvum, — ein-
mitt hann hafði þá æðri köllun að vera, þvert ofaní vomur veður-
stofunnar, fyrstur manna á vettváng þar sem voru að verki þau
eldspúandi fjöll ásamt með jarðskjálftum og jökulhlaupum sem
guð hefur gefið oss íslendíngum til áminníngar um endi heims-
ins. í miðri stórhríð eru Sigurði Þórarinssyni þetta tiltölulega ör-
uggir staðir. í svona einkennilegum plássum tekur hann fram
hljóðfæri sitt í náttstað og sýngur einsog hér byggi hið sanna líf:
María María María María
María María. ’
II
Sigurður Þórarinsson fæddist 8. janúar 1912 á Hofi í Vopnafirði. I
Vopnafirði ólst hann upp en var sendur í skóla á Akureyri og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum þar vorið 1931. Sama haust hóf
hann nám í jarð- og landafræði í Kaupmannahöfn, fluttist ári síðar til
Stokkhólms og lauk þar doktorsprófi vorið 1944. í Svíþjóð kynntist
hann konu sinni Ingu; þau komu heim 1945 og starfaði Sigurður fyrst
hjá Atvinnudeild Háskóla íslands og Rannsóknaráði ríkisins en var
skipaður forstöðumaður jarðfræðideildar Náttúrugripasafns íslands
um áramótin 1946/47. Veturinn 1950/51 og haustið 1953 var hann
settur prófessor í landafræði við Stokkhólmsháskóla, og 1968 gerðist
hann prófessor í jarðfræði og landafræði við Háskóla íslands. Jafn-