Skírnir - 01.01.1930, Page 29
Skírnir]
Merkisár i sögu Alþingis.
23
helzt geta Hafur-Bjarnar. Af honum eru komnir Nessmenn
á Seltjarnarnesi og Sturlungar. Hefir Hafur-Björn að lík-
indum verið einn þingmanna 930. Þá var Ásbjörn Özurar-
son, bróðursonur Ingólfs. Hann hefir sjálfsagt verið í betri
manna röð og sótt Alpingi með Þorsteini frænda sínum
Ingólfssyni. Þórður skeggi hefir þá ef til vill verið látinn,
og þö þarf það ekki að vera, en gamall maður hefir hann
þá verið orðinn, því að hann var tengdafaðir Ketilbjarnar
hins gamla. Á Kjalarnesi hafa haft mestar virðingar af-
komendur Helga bjólans og Örlvgs Hrappssonar á Esju-
bergi. Synir Helga voru Kollsveinn, Víga-Hrappur og Ei-
lífur, faðir Þorgils föður Stefnis kristniboða. En sonur Ör-
lygs var Valþjófur, faðir Valbrands föður Torfa. Valbrandur
hefir haft forustu í Kjós um 930, en synir eða sonarsynir
Helga bjólans á Kjalarnesi. Þá hefir Refur hinn gamli í
Brynjudal enn verið uppi og gæti hafa verið einn þing-
manna 930. Á Akranesi höfðu numið land Þormóður og
Ketill Bersasynir. Sonur Ketils var Jörundur kristni. Var
Þorgeir Hávarsson fimmti maður frá honum, eftir því sem
Landnáma segir. Jörundur kristni mun hafa verið uppi um
930, en ekki er líklegt, að hann hafi þókzt geta tekið mik-
inn þátt í lögskilum með heiðnum mönnum. Hafnar-Ormur,
sem land nam um Mela- og Leirársveit, mun þá uppi hafa
verið, því að sonur hans, Þorgeir höggvinkinni, féll á Fitj-
um á Storð þrjátíu árum síðar. Finnur auðgi nam Hval-
fjarðarströnd og bjó að Miðfelli. Hann mun hafa verið í
betri manna tölu 930. Og eru þessir menn báðir líklegir
til að hafa sótt Alþingi þá. Kolgrímur hinn gamli nam
innra hluta Hvalfjarðarstrandar og bjó að Ferstiklu. Hann
átti dóttur landnámsmanns og hefir líklega lifað fram yfir
930. Fyrir innan Skarðsheiði var mestur höfðingi Tungu-
Oddur, sonur Önundar breiðskeggs. Hann er nefndur með
mestu höfðingjum í Sunnlendingafjórðungi í höfðingjatali
Landnámu um þessar mundir, en hlýtur að hafa verið
kornungur maður, því að hann er enn mestur höfðingi í
Borgarfirði 965. Annar kunnur höfðingi í þessum byggðum
hefir verið Þórarinn Ragabróðir, sonur Óleifs hjalta land-