Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 36
30
Merkisár í sögu Alþingis.
[Skírnir
Skúta, lifði fram um 990, og er þá alls ekki gamall maður.
Tjörnes nam Bööólfur Grimsson. Hann átti Þorbjörgu Hólma-
sól, dóttur Helga magra. Hún var fædd um 890. Sonur
Böðólfs var Skeggi, faðir Þóris í Garði. Synir hans voru á
líku reki og Grettir, sem kunnugt er. Þessir feðgar, og með
vissu Skeggi faðir Þóris i Garði, hafa haft forustu um Tjör-
nes og Kelduhverfi.
Austfirðingafjórðungur. Langanes fyrir utan Helkundu-
heiði nam Gunnólfur kroppa, sonur Þóris hauknefs hersis.
Sonur Gunnólfs er nefndur Skúli herkja. Þessir frændur
voru stórættaðir og hafa verið fremstir menn í sinni byggð.
Skúli hefir sennilega verið maður á góðu reki um 930, og
mætti vera einn þingsóknarmanna úr Austfirðingafjórðungi.
í Vopnafirði voru mestir menn Þoisteinn huiti, sem þá mun
hafa verið út kominn, ættfaðir Hofsverja, Egvindur vápni,
sem bjó í Krossavik innri og lifað hefir fram yfir 930, og
Steinbjörn körtur, er þá hefir búið að Hofi. Vopnafjarðar-
strönd nam Lýtingur, afi Þorkels Geitissonar, og bjó í
Krossavík. Hafa þeir feðgar, Lýtingur og Geitir, haft þar
mannaforráð. Beggja megin Lagarfljóts námu land þeir
Þiðrandasynir, Ketill og Graut-Atli. Synir þeirra, Þiðrandi,
Þorbjörn og Þórir, hafa haft þar mannaforráð um 930. í
Fljótsdal og Skriðdal hefir göfgastur maður verið Bryn-
jólfur hinn gamli, er land tók af Una hinum danska, og ef
til vill Özur sonur hans. Hólmsteinn sonarson Özurar er meðal
höfðingj i þar í sveitum 1011—1012, þegar Flosi er í liðs-
bón sinni eftir Njálsbrennu. Hrafnkell Freysgoði var og þá
uppi og var mikilhæfur maður. Hann hefir verið mestur
atkvæðamaður í héraði þá, enda talinn meðal mestu höfð-
ingja landsins um þessar mundir i Landnámu. Um Suður-
firðina hefir verið göfgastur maður Þórhaddur hitin gamli,
er verið hafði hofgoði á Mærinni í Noregi og reisti síðan
hof á bæ sínum hér. Böðvar hinn hviti af Vors og Þor-
steinn sonur hans, faðir Síða-Halls, hafa verið göfgastir
menn um Berufjörð og héruðin þar vestur af. Þá bjó Úlf-
Ijótur og í Lóni. En göfgastur landnámsmanna í Austfirð-
ingafjórðungi var Hrollaugur Rögnvaldsson Mærajarls. Hann