Skírnir - 01.01.1930, Síða 116
110
Alþingi árið 1117.
[Skirnir
að ráða, i hvern fjórðung lögsaga skyldi hverfa. Átti þá
fjórðungur lögréttu úrskurðarvald um kjörið. Hugsunin er
sú, að þegar ekki er unr mann að velja, er skarar svo
langt fram úr öðrum, að allir séu sammála um hann, þá sé
öruggara að láta fjórðungsmenn velja, því að menn viti
betur innan hvers fjórðungs um lögþekkingu manna þar og
skörungsskap en í öllu landinu. Þó máttu fjórðungsmenn
kjósa lögsögumann úr öðrum fjórðungi, enda mundi þeir
ekki taka þar til þess annan en þann, er þeim væri nægi-
lega kunnur. Væri ekki allir fjórðungsmenn sammála, skyldi
afl atkvæða ráða. En ef jafnmargir voru með hvoru lög-
sögumannsefni, þá skyldi þeir ráða, er biskup sá féll í full-
ting með, er yfir þeim fjórðungi var. Þar með var atkvæði
andlega valdsins látið ráða úrslitum.
Um leið og lögin eru skrifuð á bók, breytist aðstaða
lögsögumannsins fyrst og fremst að því, að hann verður
að vera bóklæs. Bergþórr Hrafnsson hefir varla verið það,
að öðrum kosti mundi hann naumast hafa látið kennimenn
segja hina nýju lögskrá upp á þinginu 1118, heldur gert
það sjálfur. Um 10 af 17 lögsögumönnum, er komu eftir
Bergþór, er það vitað, að þeir voru bóklærðir (7 höfðu
tekið vígslu) og að líkindum hafa allir lögsögumennirnir
verið það, því að lítt mundi það hafa þótt sæma lögsögu-
manni að geta ekki sjálfur gengið úr skugga um, hvað á
skrá stæði.
Þegar lögin voru komin á bók, varð það hún, sem
skar úr, hvað lög væri í landi, og ekki lögsögumaðurinn.
Hann var þá ekki lengur æðsti brunnur laganna, sem allir
mænda til. Og bókina mátti margfalda eftir vild og þar
með hafa ígildi lögsögumannsins hjá sér, hvar sem var.
Lögsögumaðurinn þurfti hinsvegar ekki að kunna lögin eins
vel og áður, þegar hann hafði bókina, og að líkindum hefir
hann ekki hugsað eins mikið um þau og með >n hann varð
að festa þau öll í minni. Almenningur gat ekki heldur af
uppsögn hans ráðið, hve mikið hann kunni af því, seni
hann fór með. Starfið varð ekki eins persónulegt og áður.
Vér sjáum það t. d. á þvi, að Snorri Sturluson lét Styrmi.