Skírnir - 01.01.1930, Síða 148
142
Alþingi árið 1281.
[Skirnir
sýnist hafa verið laginn maður og lipur og meira hneigð-
ur til samninga um mál en til þess að sækja þau með
kappi.
Þegar þeir lögðu af stað úr Noregi með bókina, Jón
og Loðinn, þá var þegar farið að votta fyrir hinum miklu
breytingum, sem urðu á stjórnmálum Noregs eftir lát Magn-
úsar konungs. Synir Magnúsar konungs, Eiríkur konungur
og Hákon hertogi, voru báðir ólögráðir, er faðir þeirra féli
frá. Landsstjórnin komst því í hendur inóður þeirra, Ingi-
bjargar drottningar, og höfðingja þeirra, er hún hafði sér
við hönd, og það varð brátt augljóst, að þeir myndu í ýms-
um efnum víkja frá þeirri stefnu, er Magnús konungur
hafði stýrt. Magnús konungur hafði verið vinveittur kirkju
og kennidómi, og veitt þeim ýms réttindi bæði um skatt-
frelsi og fleira. Hefir þessi stefna Magnúsar konungs vafa-
laust eigi verið leikmannahöfðingjunum að skapi, og strax
sumarið 1280 gáfu þeir út langa réttarbót í nafni Eiríks
konungs, þar sem ýms þau forréttindi, er Magnús konung-
ur hafði veitt kirkjunni, voru af henni tekin. Seinna um
sumarið átti erkibiskup í deilum við höfðingja í Þránd-
heimi, er leiddu til þess, að biskup bannfærði herra Hall-
kel krækidans, einn af helztu ráðgjöfum Ingibjargar drottn-
ingar. Þó að styrjöldin milli klerka og leikmanna að visu
eigi blossaði upp fyrir alvöru fyrr en nokkru síðar, þá
hefir strax þetta sumar verið augsýnt, hvert stefndi. Meðan
höfðingjaþingið, er setti réttarbót þá, er áður var nefnd,
sat í Björgvin, hélt Jón erkibiskup biskupaþing þar í bæn-
um. Þar voru íslenzku biskuparnir báðir staddir, Árni og
Jörundur, og báðir fóru þeir til íslands sumarið 1280. Þeir
hafa því báðir vitað, hversu áhorfðist i Noregi, að þar dró
upp til bliku milli konungsvalds og kirkju. Af því hlaut
það að leiða, að þeir yrðu í andstöðu við konungsvaldið
hér á íslandi. Árni Þorlák'-son, sem var meiri bardaga-
maður en Jörundur, hefir sjálfsagt þá þegar ásett sér að
standa á móti lögtöku hinnar nýju lögbókar, og var nú
hlutverkum skift frá því, er hann barðist fyrir lögtöku Járn-
síðu og gekk þar erindi konungsvaldsins.