Skírnir - 01.01.1930, Qupperneq 166
160
Álþingi árið 1481.
[Skimir
með sinni nærveru. Hvort þetta hefur verið leikur einn og
bragð hjá biskupi og hann vitað fyrir, hvað verða mundi,
skal látið ósagt, en hitt er vist, að í lögréttunni virðist
mönnum hafa þótt meiri skemmd að nærveru biskups en
lögmanns, því menn vildu ekki heyra bréf hans, held-
ur hrópuðu upp, lemjandi saman höndum með óp, kall,
hark og háreysti, svo að þau skyldu ekki heyrast, og buð-
ust sumir til þess að skera sundur bréfin. Buðust og sumir
lögréttumenn til þess að draga presta út úr lögréttunni,
og höstuðu biskup þaðan burt og sögðu, að hann ætti ekki
þar að vera. Þó að biskup benti til þess, að hann væri í
ríkisráðinu norska, kom það fyrir ekki, og er á sumum
lögréttumönnum heyrðist, að það myndi gilda líf prest-
anna, ef þeir léti ekki af sínum upptektum, sá biskup þann
kost vænstan að víkja úr lögréttunni með klerkum sínum.
Ekki þarf að efa það, að biskup hafi ekki vikið úr lögréttu
fyrri enn í fulla hnefana, enda segir í vitnisburði um þetta
atvik allí, sem biskup lét gefa út á Hólum 6 dögum síðar,
og bersýnilega er honum vilhallur í meira lagi, að þetta hafi
verið gert með samþykki nokkurra nafngreindra manna og
»allra annarra almúgans«, sem móti biskupi voru, og bendir
það til þess, að jafnvel hann hafi ekki treyst sér til þess
að neita, að í þessum mótgangi við hann hafi flestir lög-
réttumenn verið.
Það er auðvitað, að atvik eins og þetta hefir ekki
gerzt fyrirvaralaust og undirbúningslaust af tilfallandi or-
sök, og hjaðnað með henni. Það er þvert á móti bersýni-
legt, að þetta atvik er vel undirbúið og hefir Iangan að-
draganda, þótt hann, eins og oft vill verða, skíni ekki út
um atvikin. Það er miklu fremur gamall logi, sem hefir
brotizt út eða verið látinn brjótast út, sem hitinn allur og
heiftin stafar af. Atvik þetta hefir því bæði innri og raun-
verulega orsök og ytri stundarorsök, enda þótt þær séu
ekki með öllu óskyldar.
Maður er nefndur Bjarni Ólason. Hann bjó á Hvassa-
felli í Eyjafirði, og var sæmilega efnaður, þótt ekki væri
hann ríkur maður. Hann virðist hafa átt 4 jarðir með