Skírnir - 01.01.1930, Side 261
Skírnir]
Alþingi árin 1798—1800.
255
höfuðstaður landsins og bezt byggður, og þar sé hægast að
fá sér húsnæði og viðurværi.
Núlifandi kynslóð, sem tignað hefir Alþingi við Öxará,
sem fjöregg þjóðarinnar, og talið hefir hinn forna þingstað
hinn furðulegasta, fegursta og helgasta stað lands síns,
mun hnykkja við þau ummæli, að þetta Alþingi hafi allt
af verið gagnslaust og þingstaðurinn svo ljótur, að eigi
geti annan stað ljótara á Iandi hér. Þessa skoðun undir-
skrifa þrír íslendingar árið 1800, menn, sem stóðu fremstir
sinnar þjóðar á þeirri tíð að gáfum, og að minnsta kosti
tveir þeirra brunnu af áhuga á viðreisn og framförum
þjóðarinnar. Þessir menn hljóta að hafa eitthvað til sins
máls, sem oss nútímamönnum sést yfir.
Hvaða Alþingi er það, sem þeir eru að lýsa? Það er
siðustu alda og sérstaklega 18. aldar Alþingi, sem þeir
þekkja af eigin raun. Það er samkoma embættismanna og
nokkurra manna annarra, eins og þeir segja sjálfir í 1. gr.
frumvarps síns. Þetta Alþingi varð varla talin stjórnarfars-
leg eða réttarfarsleg stofnun, sem hafði lögbundið hlut-
verk að inna af hendi. Hinar starfandi stofnanir eru lög-
þingin, tveir liliðstæðir dómstólar, og þar fara fram megin-
störfin; þess vegna er nafnið lögþingi einnig orðið hið
almenna heiti þeirrar stofnunar eða þess þings, sem haldið
er á Þingvelli. Og það er ekki lögþingi í skilningi Jóns-
bókar, heldur í skilningi norsku laga. Hinni fornu Alþingis-
skipun var kollvarpað til fullnustu með tilsk. 16. nóvbr.
1764, og lögþingisskipun N. L. 1—7—2 sett í staðinn.
Nafnið Alþingi hvarf smám saman fyrir lögþingisheitinu.
Alþingi var orðið innviðalaust, innantómt hugtak. Lög-
þingin voru frá því skilin, yfirrétturinn og sýnódalrétturinn.
En þessar stofnanir áttu það sameiginlegt, að þær voru
háðar í sama mund á sama stað; i meðvitund manna hafa
þær allar hlotið heildarheitið Alþingi, þótt þær að lögum
mynduðu ekki neina heild, sem heitið gæti því nafni. En
Alþingi var allt að einu til að lögum. Óhögguð stóðu
ákvæði Jónsbókar, 1. kap. og 2. kap. Þingfararbálks, að
lögþingi (Alþingi) skyldi háð að öxará og valdsmenn allir