Skírnir - 01.01.1930, Page 285
Skírnir]
Alþingi árið 1845.
279
mest í 42, eins og þeir í Kaupmannahöfn höfðu viljað hafa
þjóðkjörnu þingmennina. Ein bænarskrá (úr Norður-Múla-
sýslu) hafði einnig ósk um fjölgun konungkjörinna þing-
manna í 8, og skyldi viðbótarmennirnir kjörnir fyrir verzl-
unarstéttina. Tölu þingmanna var aldrei breytt, nema einum
þingmanni fyrir Austur-Skaftafellssýslu var aukið við með
tilsk. 6. jan. 1857.
c. Það hefir verið nokkur óánægja með það, að kon-
ungsfulltrúi skyldi mega tala á dönsku á þingfundum. í
meiri hluta bænarskránna eru bornar fram óskir um það,
að allt fari fram á islenzku á þinginu og að konungsfull-
trúi verði að lúta þeim lögum sem aðrir. í sumum kemur
beinlínis fram ósk um það, að konungsfulltrúi skuli vera
islenzkur maður. Á fyrirmælunum í Alþtilsk. um þingmálið
voru aldrei gerðar breytingar, en Bardenfleth var ekki kon-
nngsfulltrúi nema á þingunum 1845 og 1847. Þá tók Páll
Melsted amtmaður umboð konungsvaldsins, síðan kom
Þórður Jónasson og loks Hilmar Finsen, sem á íslenzku
mælti, að minnsta kosti eftir að hann hafði hér nokkuð
dvalizt. Þó að Bardenfleth gæti ekki talað islenzku, þá
hefir hann skilið hana fullum fetum, enda gefur hann það
* skyn í þingsetningarræðu sinni. Hefði sá konungsfulltrúi,
sem eigi skildi ræður þingmanna, verið mjög óheppilegur,
þvi að mjög mundi þ.ið hafa tafið þingstörfin, ef allt af
hefði þurft að þýða fyrir hann á dönsku ræður þingmanna.
d. Ekki var meira en vonlegt, að enn eimdi eftir af
Möfum þeim, sem gerðar höfðu verið um Alþingisstaðinn.
1 4 bænarskránum er vikið að þessu (úr Strandasýslu,
Barðastrandarsýslu, Dalasýslu og Suður-Þingeyjarsýslu). í
bænarskránni úr Dalasýslu er stungið upp á því, að Þing-
vallarkirkja verði svo endurbætt og löguð, að Alþingi megi
heyja í henni. Barðstrendingar fara ekki Iengra en það, að
Alþingi megi flytja á Þingvöll, ef svo sýnist. Bænarskrá
um þetta efni kom fram á þinjunum 1847 og 1849 úr
2 3 sýslum á landinu, en áhuginn hefir víst almennt tek-
mn að dofna á þessu máli, enda sinnti þingið ekki þessum
^triðum bænarskránna.