Skírnir - 01.01.1930, Page 323
Skímir]
Alþingi árið 1903.
317
vildi samþykkja frumvarpið frá 1901, eða nýtt frumvarp
innihaldandi að auki ákvæði um búsetu æðstu stjórnarinnar
innanlands, og það frumvarp ætlaði stjórnin sjálf að leggja
fyrir þingið. Það var ekki mikill vafi á þvi, hvorn kostinn
íslendingar myndu taka. Boðskap konungs var tekið með
almennum fögnuði. Báðir flokkar voru ákveðnir í að taka
frumvarpi stjórnarinnar, og báðir flokkar töldu sig hafa
sigrað.
Kosningar til aukaþingsins 1902 höfðu farið þannig, að
Heimastjórnarmenn komust í meiri hluta. Er það því ljóst,
að ekki myndi frumvarpið frá 1901 hafa orðið samþykkt.
Um frumvarp stjórnarinnar, er lagt var fyrir þingið 1902,
er óþarft að fjölyrða (sjá þó um ríkisráðið hér síðar), því
að það er stjórnarskipunarlögin 3. oktbr. 1903 með þeim
einum breytingum, að orðinu »ráðgjafi« í frumvarpi stjórn-
arinnar var breytt í »ráðherra«, það þótti íburðarmeira, og
að tveimur óþörfum orðum var sleppt úr 6. gr. Frumvarp-
inu fylgdu þær athugasemdir, að það bæri ekki að skoða
sem samningagrundvöll, sem gera megi frekari breytingar
á, heldur sem tilboð, er Alþingi væri í sjálfsvald sett að
taka eða hafna. Og þetta sama tók landshöfðingi skýrt
fram eftir fyrirmælum ráðgjafans, þegar frumvarpið var
lagt fram. — Þótti því mörgum sem hér fylgdi böggull
skammrifi.
Frumvarpið var lagt fyrir Neðri deild og auðvitað
vísað til nefndar. Hún klofnaði eftir flokkum í meiri hluta
(Heimastjórnarmenn) og minni hluta (Framsóknarmenn).
Ágreiningurinn var samt ekki um frumvarpið sjálft; báðir
flokkar lýstu yfir því, að þeir ætluðu að samþykkja frum-
varpið óbreytt. Ágreiningurinn reis út af orðalagi álits
meiri hlutans, því að í því var deilt á meðferð núverandi
minni hluta á frumvarpinu árið áður; einkum það, að hann
hefði keyrt frumvarpið gegn um þingið, þótt þá hefði ver-
ið komin fregn um stjórnarskifti í Danmörku, og hefði
verið þess valdandi, að rýmri kjör hefðu ekki fengizt í
einstökum atriðum. Umræðurnar í Neðri deild snerust líka
aðallega um þetta atriði. í Efri deild var líka sett nefnd í