Skírnir - 01.01.1930, Page 331
Skírnir]
Alþingi árið 1918.
325
Frá 1874—1904 hafði dómsmálaráðherra Danmerkur jafn-
framt farið með íslenzk mál, sem vitanlega voru mjög
vanrækt, eins og auðsætt er af kyrrstöðu þeirri, sem ríkti
allt þetta tímabil á íslandi að kalla má. Eftir 1904 réð Al-
þingi því í verki og framkvæmd, hver íslandsráðherra væri.
Ráðuneytisskifti í Danmörku skiftu engu máli um það.
Flutningur »sérmála«-stjórnarinnar inn í landið var mjög
þýðingarmikið spor fram á við. En ekki mátti þó vænta
þess, að íslendingar mundi lengi láta sér þessa ívilnun
nægja. íslenzk sérmál voru enn borin upp fyrir konungi í
ríkisráði Danmerkur, auk þess sem öll hin sömu málefni
voru enn í höndum danskra stjórnvalda, sem verið höfðu
það frá 1874. Raddir heyrðust og um algerðan skilnað
milli landanna. Þótt meiri hlutur manna væri þá eflaust
móthverfur þeirri stefnu, þá var auðvitað, að hún mundi
lifa og festa rætur, eins og raun varð á. Sjálfsagt hafa
einhverir hinna vitrari manna í Danmörku haft grun um
það, að skilnaðarhugmyndin gæti glæðzt og því væri rétt-
ara að reyna að skipa sambandinu milli íslands og Dan-
merkur svo, að íslendingar mætti verða ánægðir. Meðal
þessara manna mun Friðrik konungur 8. hafa verið. Svo
er sagt, að hann hafi átt upptökin að því, að íslenzkum
Alþingismönnum var boðið til Danmerkur 1906. 1907 heim-
sótti konungur ísland, og var þá skipuð nefnd íslenzkra og
danskra þingmanna til þess að gera tillögur um ríkisréttar-
stöðu íslands »i det samlede danske Rige«, eins og það
er orðað í danska texta skipunarbréfsins. Nefnd þessi starf-
aði og gerði heyrinkunnar tillögur sinar 1908, fyrra hluta
ársins. Um þær var deilt mjög á íslandi sumarið 1908.
Almennar Alþingiskosningar þá fóru svo, að fylgjendur til-
lagnanna (»uppkastsins«) komust í mikinn minni hluta á
Alþingi. Þingið 1909 samdi nýtt frumvarp um réttarsam-
band Iandanna, en Danir vildu ekki ganga að því, enda
horfði nú ekki vænlega um samkomulag um lausn máls-
ins. Tilraun var af nýju gerð til að leysa málið 1912, en
hún fór alveg út um þúfur.
Eftir að þessar tilraunir til þess að leysa sambands-