Skírnir - 01.01.1930, Page 363
Skírnir]
Alþingi árið 1918.
357
við frumvarpið. Bættu nú íslenzku undirnefndarmennirnir
grein í athugasemdirnar um það, að þeir hefði sveigzt til
að nefna ákvæðin »lög« í stað »samnings«. Þau væri samn-
ingur jafnt fyrir það, í hvaða búning sem þau væri klædd,
því að efni þeirra væri samningur, og hefir þetta aldrei
verið vefengt af hálfu Dana og eigi heldur svo að kunn-
ugt sé hér á landi, nema úr einni átt, og þó ekki af and-
stæðingum frumvarpsins á Alþingi. Auk þess voru gerðar
orðabreytingar á nokkrum stöðum.
Miðvikudaginn 17. júlí kl. 10 árdegis var næsti (10.
fundur) samninganefndarinnar haldinn. Þar var nú lagt
fram frumvarpið sjálft prentað á dönsku, eins og það var
orðað eftir fundinn 16. júlí, og uppkast að athugasemdum
við frumvarpið, eins og undirnefndin hafði gengið frá því.
Varð nú fullt samkomulag um hvorttveggja í öllum atrið-
um, nema hvað Bjarni Jónsson frá Vogi sagðist enn þurfa
að ræða málið með flokksmönnum sínum áður en hann
tæki úrslita-afstöðu. En eigi var sá, er þetta ritar, þó í
nokkrum vafa um það þá, að sjálfur vildi Bjarni taka því,
sem samkomulag var orðið um. Fundi var nú frestað til
kl. 8 síðdegis sama dag, og skyldi Bjarni hafa borið sig
saman við flokksbræður sína á meðan. Þá var fundinum
fram haldið, og höfðu allir flokksbræður Bjarna tjáð sig
frumvarpinu fylgjandi, nema Benedikt Sveinsson og Magn-
ús Torfason, sem höfðu áskilið sér frjálsar hendur í málinu.
Frumvarpið var nú, eins og gengið var frá því um
morguninn 17. júlí, sent stjórn og þingmönnum. Síðar þann
dag var skotið á einkafundi meðal þingmanna til þess að
sýna mætti svart á hvítu, hvernig afstaða þeirra væri.
Urðu ekki langar umræður um málið, og gerðist ekkert
sögulegt. Var frumvarpið borið undir atkvæði þingmanna.
Var haft nafnakall og greiddu allir þingmenn frumvarpinu
atkvæði, nema Benedikt Sveinsson og Magnús Torfason.
Þeir greiddu eigi atkvæði að því sinni. Voru því 38 af 40
þingmönnum einráðnir í að samþykkja frumvarpið.
Nú var eftir að gera íslenzka texta frumvarpsins og
athugasemdanna við það. Var ákveðið, að hvorirtveggja