Skírnir - 01.01.1930, Page 367
Skírnir]
Alþingi árið 1918.
361
3. fundi neðri deildar, 6. september, var frumvarpið tekið
til 2. umræðu. Þurfti afbrigði frá þingsköpum til þess að
taka málið fyrir, með því að eigi voru liðnar tvær nætur
frá útbýtingu nefndarálitsins. Benedikt Sveinsson mælti á
móti afbrigðum. Voru afbrigði leyfð með 24 atkv. gegn 4.
Vitanlega var ástæðulítið að sitja lengur yfir málinu en
skemmst mátti verða, því að þingmönnum öllum var það
fullljóst, þar sem þeir höfðu setið yfir því síðan í júlí og
allir vissu, að þingmenn voru einráðnir að samþykkja það,
að 2 undanteknum. Hófust nú umræður og reið Benedikt
á vaðið. Vék hann nú einkum að utanríkismálunum og
þótti illa farið, að Danmörk fengi umboð til meðferðar
þeirra. Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Arnórsson höfðu
framsögu fyrir meiri hlutann. Sagði Bjarni nú sem fyrr, að
hann hefði talið rétt að kaupa fullveldisviðurkenninguna
og meðferð allra mála landsins fyrir jafnréttisveizluna og
utanríkismála-umboðið þau 25 ár, er líða mætti þar til
uppsögn samningsins mætti fara fram. Eldu þeir sam-
herjarnir gömlu grátt silfur um hríð. Auk framsögumanna
meiri hlutans töluðu forsætisráðherra (J. M.) og fjármála-
ráðherra (Sig. Eggerz) með frumvarpinu. Urðu umræður
okki langar, og var frv. samþykkt til 3. umræðu með öll-
um atkvæðum deildarmanna gegn 1 (Bened. Sv.). Til 3.
umræðu kom frv. daginn eftir, 7. sept. Urðu skammar um-
ræður og var frumvarpið afgreitt óbreytt til efri deildar.
í efri deild kom málið til 1. umræðu 7. sept. og fóru
tvær umræður þar fram þann dag. Framsögumaður meiri
hluta fullveldisnefndar var Jóhannes Jóhannesson, en Magn-
ús Torfason var til andmæla. Er engin ástæða til að rekja
þær umræður hér, enda hlutu þær að hníga í sömu
átt sem í neðri deild. Þess má aðeins geta, að í nefndar-
áliti minni hlutans (M. T.) kom frarn undarlegur misskiln-
ingur á nokkrum atriðum. Þar segir t. d., að íslendingar
geti ekki sett frekari skilyrði fyrir réttindanautn hér en
Danir hjá sér, ef frv. verði samþykkt, — hér er embættis-
skilyrði t. d. próf frá háskóla íslands, að búsetu geti ís-
lendingar ekki gert að skilyrði fyrir réttindanautn hér, —