Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Blaðsíða 65
JÓN TORFI JÓNASSON
SKIPT UM SKOÐUN
Um flutning nemenda á milli þrenns konar
námsbrauta í framhaldsskóla
Brautum framhaldsskólanna var skipt íprjá ólíka flokka, iðnnám, margvíslegt annað starfs-
nám og stúdentsnám, en par eru meðtaldar ýmsar stuttar bóknámsbrautir. Athugaður var
flutningurá milli pessara priggja flokka brauta, hve mikill hann var, hve mörgum einingum
nemendur höfðu lokið pegar peirfluttu sig, hvaða leiðir voru algengastar og afhvaða braut-
um nemendur fluttu sig helst. Rætt var um hvaða samband væri á milli samræmdra prófa
annars vegar og flutnings, námsloka og námsgreinavals hins vegar. Aðeins um 17% nem-
enda hafa flutt sig á milli brauta og aðeins um helmingur peirra hefur lokið fleiri en 30 ein-
ingumfyrir flutning. Tæp3% heildarinnar hafa lokið upphaflegu námi st'nu áður en flutt er,
en pað er samt verulegur hluti peirra sem hafa lokið fleiri en 40 einingum. Afpeim sem Ijúka
fleiri einingum en 40 hefur yfir hehningur lokið braut sinni áður en flutt er. Meginniður-
staðan er sú að tiltölulega fáir flytja sig til ogflestir peirra flytja sig áður en miklu námi er
lokið og pess vegna reynir ekki mjög á mat á milli brauta af ólíku tagi. Að vísu er hlutfall
peirra sem flytja sig mjög ólíkt fyrir pilta og stúlkur; mun fleiri piltar skipta um skoðun.
Stærsti hópurinn, sem flytur sig, er sá sem er að flytja sig af stúdentsbrautum og síðan
kemur hópurinn sem flytur sig af iðnbrautum. Ef miðað er við að samræmdu prófin spegli
námsgetu pá veljast nemendur á brautir eftir námsgetu og prófin spá fyrir um líkur á náms-
lokum. Þeir sem flytja sig af starfsnámsbrautunum hafa hærri einkunnir en peir sem eru par
kyrrir, en pessu er öfugt farið á stúdentsbrautunum. Áberandi er hve hátt hlutfall dugmik-
illa bóknámsnemenda flytur sig af iðnnámsbrautum fjölbrautaskólanna yfir á bóknáms-
brautir, pótt mestu flutningarnir séu af bóknámsbrautum yfir á starfsnámsbrautir (sjá
Töflu 3). I lok greinarinnar er komist að peirri niðurstöðu að líklega skipti skipulagsreglan
um auðveldan flutning á milli námsbrauta harla litlu máli innan framhaldsskólans pegar
hér er komið sögu, par sem hann sé í augum flestra nemenda tiltölulega samstæður bók-
námsskóli, en krafan um samhæft skipulag námsbrauta á háskólastigi muni hins vegar láta
á sér kræla innan tíðar."
Það er oft talið mikilvægt einkenni sveigjanlegs skólakerfis að nemendur geti flutt
sig á milli skóla eða námsbrauta og fái sem mest af fyrra námi sínu metið á nýrri
braut. Þetta er meðal annars liður í því að halda leiðum opnum svo fólk lendi ekki í
öngstrætum og geti jafnframt frestað vali sínu á sérhæfðri námsbraut sem lengst.
Þeir sem skipta um skoðun eða vilja bæta við sig námi geti þá gert það án þess að
þurfa að byrja upp á nýtt. Af þessum ástæðum hefur skólastarf undanfarna áratugi
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, sérfræðingur á Félagsvísindastofnun, hefur veitt mér dyggilega aðstoð við alla
úrvinnslu. Styrkur fékkst úr Rannsóknasjóði Háskóla íslands til þess að vinna úr gögnum fyrir þessa grein. Ég
kann ónafngreindum ritdómurum þakkir fyrir fjölmargar gagnlegar ábendingar.
Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 3. árg. 1994
63