Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Blaðsíða 36
„STRÁKAR O G STELPUR í TAKT VIÐ TÍMANN"
ólaunaðra starfa, var sérstakt könnunareyðublað hannað sem tók smávægilegum
breytingum á milli fyrirlagna:
1. Til að kanna viðhorf barnanna til eigin getu (sjá Töflu 1) var spurt beint hvort þau
teldu sig geta leyst ákveðin verk á sviðum sem ætlunin var að þjálfa í hópunum.
Strax eftir fyrstu fyrirlögn kom í ljós að mikill meirihluti barnanna taldi sig ráða við
sum verkefnanna í upphafi, svo að Ijóst var að ekki gat orðið mikil framför við
seinni athugun að óbreyttu formi. Þessu var m.a. mætt með því að bæta við nokkr-
um nýjum atriðum, sem ætlunin var að þjálfa í starfskrókum síðar samkvæmt verk-
efnisáætlun kennara.
2. Til að kanna viðhorf barnanna til launa á vinnumarkaði var spurt um 18 störf,
hvort konur, karlar eða allir, þ.e. bæði kynin, geti unnið þau og hversu há laun þeim
finnist að greiða eigi fyrir þau. Valin voru störf, sem eru aðallega unnin af konum
eða af körlum, og störf sem bæði kynin vinna. Engin slík flokkun kom þó fram á
eyðublaðinu. Akveðið var að leita eftir hugmyndum barnanna sjálfra um það hverj-
ir vinna störfin og að athuga hvernig hugmyndir þeirra um laun tengjast þeirri
flokkun. í Töflu 2 sést hvaða störf var spurt um í upphafi og við lok verkefnisins. í
lokaathuguninni var ákveðið að bæta þrem störfum við, þar sem þau komu beint
við sögu í vettvangsheimsóknum misserisins, og sleppa einu sem mörg barnanna
þekktu ekki í fyrstu fyrirlögn.
Tafla 2
Athugun á viðhorfum barnanna til starfa á vinnumarkaði.
Þau störf sem spurt var um í upphafi og lok verkefnisins.
Sameiginleg atriði í báðum fyrirlögnum eru skáletruð
Upphaf: Febrúar 1991
Lögregla, kennari, hjúkrunarfræðingur, slökkviliðsmaður, smiður, hár-
greiðslustarf, afgreiða íbúð, pvo gólf ískóla, sjómaður, forseti, fóstra, vinna í
frystihúsi, alpingismaður, bera út póst, verkfræðingur.
Lok: Maí 1992
Þau störf sem eru skáletruð frá því í febrúar 1991 hér að ofan auk eftir-
farandi starfa: bankastjóri, gjaldkeri (í banka/pósthúsi) og flugvirki.
34