Hugur - 01.01.2002, Page 30

Hugur - 01.01.2002, Page 30
Hugur Heimspeki margfalds persónuleika þennan dag lesa flestir bækur Kierkegaards eins og Climacus og hinir væru málpípur hans. En það er misskilningur, eins og James Conant og aðrir hafa bent á. Og það er jafnmikill misskilningur að halda að Phil- ologus eða Commentarius setji fram hugmyndir eða túlkanir Loga Gunnarssonar. Það skiptir engu máli hvaða skoðun sá hefur sem þetta viðtal hér er við. Það sem skiptir máli er samband Loga Gunnarssonar - þess sem undirritar yfirlýsinguna í upphafi Stiga Wittgensteins - og Philologusar og Commentariusar. I þessari yfirlýsingu segir Logi að hann sé jafnlangt frá því að vera Commentarius og að vera Philologus. Bókin verður aðeins skilin ef þetta er tekið alvarlega. Ég lýsi því hér yf- ir í annað og síðasta skipti: Logi Gunnarsson er hvorki Johannes Phil- ologus né Johannes Commentarius. í umræddum ritdómi er fjallað ítarlega um nýútkomna bók þína Making Moral Sense og segir Kristján jafnframt að kenningu þína skorti tengsl við líkamleika mannsins eða það að hann er vera af holdi og blóði. Hvernig svarar þú þessu? Kristján setur í sínum vandaða og skarpskyggna ritdómi fram mörg mikilvæg gagnrýnisatriði sem ég vonast til að geta ijallað um bráðum á prenti. En ágreiningsmálin eru of flókin til þess að afgreiða þau í stuttu viðtali. Þess vegna vil ég aðeins minnast á eftirfarandi: Ég færi rök gegn grunnhyggju í Making Moral Sense. Grunnhyggja er sú kenning - svo að maður tali í líkingamáli - að hús siðferðisins hrynji niður ef það er ekki byggt á forsiðferðilegum grunni, svo sem á grunni mannlegs eðlis eða mannlegrar náttúru. Ég gagnrýni m.ö.o. þá hugmynd - sem Kristján kallar „veraldarhyggju“ - að siðferðið sé ekki öruggt í sínu húsi nema það sé byggt á grunni mannlegrar náttúru. Það er þessi hugmynd um mannlega náttúru sem grunn sem ég andmæli. Ég er tilbúinn til að sam- þykkja að húsið styrkist ef það er ekki einungis reist á siðferðisstólpum heldur einnig haldið saman úr steinsteypu mannlegrar náttúru. Þar með styrkja mannleg náttúra og siðferðið hvort annað, en hvorugt þeirra er grunnur hins. Ég efast um að Kristján sýni fram á að siðferðið þurfi að byggjast á mannlegri náttúru sem grunni jafnvel þótt siðferðið þurfi jafnmikið á stuðningi mannlegrar náttúra að halda og náttúran þarf á siðferðinu að halda. En þetta er nokkuð sem ég vonast til að ijalla um síðar í lengra máli. 28
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.