Hugur - 01.01.2002, Page 54

Hugur - 01.01.2002, Page 54
Hugur W.V. Quine hvaða tilfallandi kringumstæðum þær eru sagðar eða færðar í letur. Þeg- ar kemur að ævarandi setningum koma setningar stærðfræðinnar fyrst upp í hugann þar sem staður og stund skipta svo augljóslega engu máli í stærðfræði. Næst koma lögmál eðlisfræðinnar upp í hugann, því enda þótt þau fjalli um hinn efnislega heim með nærgöngulli hætti en lögmál einberra talna þá er þeim ætlað að eiga við um alla tíma og alla staði. En almennt eru þó ævarandi setningar ekki eins virðulegt safn og nafn- ið og þessi dæmi gefa til kynna. Hversdagslegar staðhæfingar um létt- vægar staðreyndir má gera að ævarandi setningum með því að bæta við nöfnum og tímasetningu og strika út tíðir sagnorðanna. Setningarnar: ‘Það er rigning’ og ‘Þú skuldar mér tíu dollara’ samsvara þá: ‘Það er rign- ing í Boston, Massachusetts þann 15. júlí 1968’ og ‘ Bernharður J. Ortcutt skuldar W.V. Quine tíu dollara þann 15. júlí 1968’, þar sem farið er með sagnorðin ‘rignir’ og ‘skuldar’ sem tíðalaus orð. Peirce kallaði töluð orð og letranir merki viðkomandi setningar eða orðmyndar, og orðmyndir eru svo aftur tegundir talaðra orða og letrana. Frege talaði um tvö sanngildi, hið sanna og hið ósanna. I hnotskurn get- um við þá sagt að ævarandi setningar séu þær setningar þar sem við- komandi merki hafa öll sama sanngildi. Við getum ímyndað okkur þá langsóttu tilviljun að sami strengurinn, hvort sem hann samanstendur af hljóðum eða bókstöfum, tákni ‘2 < 5’ í einu máli en ‘2 > 5’ í öðru. Þegar við segjum að ‘2 < 5’ sé ævarandi setn- ing þá verðum við að líta á þetta sem setningu í okkar eigin tungumáli, og við teljum sönn einungis þau merki sem eru töluð orð eða letranir sem tilheyra okkar eigin málsamfélagi. Nærtækari tilviljun gæti leitt til þess að ævarandi setning sem var sönn gæti orðið ósönn vegna breytingar sem ætti sér stað í stöðugri þróun tungumálsins. Þetta frávik verðum við einnig að líta á sem mismun tveggja mála: Tungumálsins eins og það er í dag, og tungumálsins eins og það var á einhverjum öðrum tíma. Streng- urinn sem um ræðir er og verður sönn og ævarandi setning í eldra máli. Það vill bara svo til að hann birtist aftur sem ósannindi í öðru seinni tíma máli. Þegar við segjum að setning sé ævarandi þá segjum við það miðað við tiltekið tungumál á tilteknum tíma.5 Vegna þessa vandræðalega afstæð- is er það kostur, frá fræðilegum sjónahóli, að miða sanngildi við merki því það er venjulega engin spurning um hvert tungumálið er eða á hvaða stigi það er. Tungumálið sem um er að ræða er einfaldlega tungumál þess sem hefur orðið á þeim tíma sem hann hefur orðið. En það getur 5 Þetta olli L.J. Cohen áhyggjum. L.J. Cohen (1962): The Diversity of Meaning, (London, Methuen) bls. 232. 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.