Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 54

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 54
daglegu starfi fær hann fyrirhöfnina launaða með því að sjá börnin dafna. Í þriðja lagi að fá staðfestan árangur; kennari þarf reglulega að fá jákvæða endurgjöf á vinnu sína til að öðlast starfsánægju. En Bloom (2000) varar við því sem hún kallar samstarfsgildrur. Hún talar um áhrif ríkjandi hópa og segir að í starfsmannahópi geti ákveðinn hópur orðið ríkjandi og komið í veg fyrir að ákvarðanir séu teknar. Slíkir hópar geta verið formlegir (kennar- ar, foreldrar, starfsfólk í eldhúsi) eða óformleg klíka, og hún bendir á að sumir hópar hafa betri stöðu, völd og áhrif en aðrir. Hún segir að slík hópamyndun stuðli að fábreytni skoðana innan hópsins sem geti leitt til gagnrýnisleysis. Þetta fyrirbæri nefnir hún hóphugsun og segir að hún komi fram þegar löngun hópsins eftir sam- komulagi verður yfirsterkari hæfninni til að meta vandamál rétt og íhuga alla val- kosti við ákvarðanatöku. Starfsþróun er einn áhrifaþáttur námskrárgerðar en hún felur í sér skipulega endurmenntun kennara í samræmi við mótaða starfsþróunarstefnu hvers skóla og áætlanir á grundvelli hennar (Rúnar Sigþórsson o. fl., 1999). Samræma verður þarfir einstaklinga og skóla fyrir faglega þróun þegar gerð er áætlun um starfsþróun að mati Russel (1996). Bein tenging á að vera við námskrárgerðina þar sem kennarar geta bætt kennslu sína, t.d. varðandi listir og hönnun með því að fara á námskeið. Starfsþróunaráætlun á að styðja þarfir skólans fyrir umbætur. Evans (2001) bendir á að nýjungar í starfi leiði til þess að starfsfólk þurfi að hafna eldri starfsháttum og taka upp nýja sem oft krefjast nýrrar færni. Niðurstöður fjölda rannsókna styðja það að starfsfólk þarfnast leiðsagnar við að þróa nýja færni. Í rannsókn Þórdísar Þórisdóttur (2003) sýna niðurstöður að símenntun í leikskól- um virðist helst skila sér í starfsánægju og auknu sjálfsöryggi starfsfólks og að nám virðist veita starfsfólki aukin völd og virðingu í leikskólanum. Símenntun varð þannig leið ófagmenntaðs starfsfólks til að hafa meiri áhrif í leikskólanum og á leik- skólastarfið. Faglegur ávinningur kom fram í aukinni meðvitund starfsfólks um að hverju það vildi stefna í starfinu, aukinni þekkingu á fagstarfi og hæfni til að nota fjölbreyttar aðferðir í starfinu. Það kom einnig fram að símenntun skilaði sér í um- ræðu sem þátttakendur voru sammála um að væri það sem einna líklegast væri til að auka árangur símenntunar. Mat – hin hlið skólanámskrár Með tilkomu aðalnámskrár árið 1999 og leikskólum var gert skylt að gera sína eigin skólanámskrá var þeim einnig ætlað að þróa matsaðferðir til að meta leikskólastarfið (Reglugerð um starfsemi leikskóla nr. 225/1995). Endurmat er á margan hátt undir- staða þess að gera eigin skólanámskrá að mati Kolbrúnar Vigfúsdóttur og Margrétar Vallýar Jóhannsdóttur (2001). Þær telja að þegar hafist er handa við námskrárgerð þurfi að byrja á því að skoða hvað verið sé að gera í viðkomandi leikskóla, af hverju viðkomandi leið sé valin og hvað styðji það val. Þær segja að leggja þurfi mat á starfið sem verið er að vinna til að geta sett saman skólanámskrá. Mat í þessu samhengi felur í sér að greina eða kortleggja þær skráðu og óskráðu aðferðir, reglur og venjur sem fyrir eru í leikskólanum. Bruce (1992) telur matið mikilvægt fyrir foreldra því með Þ Ö G U L Þ E K K I N G F Æ R M Á L – S K Ó L A N Á M S K R Á R G E R Ð Í L E I K S K Ó L A 54
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.