Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 72

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 72
þjónað hlutverki öfugrar spegilmyndar sem þjóðir Evrópu staðsettu sig út frá (Kristín Loftsdóttir, 2004). Mannfræðingar hafa í litlum mæli einbeitt sér að greiningu texta námsbóka, þrátt fyrir að hafa lengi vel stundað það sem kalla má á íslensku etnógrafíu menntunar (educational ethnography). Etnógrafía menntunar hefur lagt áherslu á rannsóknir innan skólakerfisins, meðal annars með því að nota þátttökuathugun (ethnographic method). Þessi aðferðafræði sem oft er kennd við mannfræðina felst meðal annars í beinni athugun á ákveðnum fyrirbærum og formlegum og óformlegum viðtölum. Etnógraf- ía menntunar hófst með rannsóknum þekktra einstaklinga, svo sem bandarísku fræðikonunnar Margaret Mead sem skoðaði vandamál tengd menntun indíánabarna í Bandaríkjunum um miðja 20. öld (Yon, 2003). George Spindler stóð fyrir fyrstu ráð- stefnunni þar sem mannfræðingar skoðuðu menntun sérstaklega (Educational Anthropology Conference) en hún var haldin í Stanford árið 1954 og var mikilvæg lyfti- stöng fyrir þessi fræði. Etnógrafíur sem hafa verið unnar innan skólakerfisins undir- strika að skólar og sú félagsmótun sem þar fer fram sé flókið fyrirbæri og ekki rétt að gera ráð fyrir að nemendur séu óvirk móttökutæki eða kennarar fulltrúar ríkisvalds- ins eins og fræðimenn virtust lengi vel gera ráð fyrir (sjá umfjöllun í Olsen, 1997; Yon, 2003). Rannsóknir gerðar í skólum sýna þvert á móti fram á fjölþætt og flókin ferli sem þar eiga sér stað. Hér ætla ég að fjalla um greiningu mína á íslenskum grunnskólabókum en hún leggur sérstaka áherslu á framsetningu efnis um Afríku. Ég mun einkum beina athygli minni að aðferðafræðilegum þáttum verkefnisins og vandamálum sem komu upp en jafnframt fjalla stuttlega um nokkrar niðurstöður. Ég vona að slík umfjöllun geti verið framlag til áframhaldandi umræðna um hvernig nálgast megi námsbækur fræðilega, hvað beri að hafa í huga við rannsóknir á þeim, sem og að undirstrika mikilvægi þess að skoða á gagnrýninn og uppbyggjandi hátt það efni sem notað er við kennslu í grunnskólum landsins. Hér ber augljóslega að hafa í huga að náms- bækur eru einungis einn hluti þeirra námsgagna sem notuð eru í skólum og vissu- lega er einnig áhugavert að skoða aðrar tegundir námsgagna. Mörgum námsbókum fylgja einnig kennsluleiðbeiningar sem fela ekki síður í sér áhugaverð viðhorf og móta að einhverju leyti kennslu í viðkomandi fögum. Þá hafa verið gefin út mynd- bönd og annað efni sem nota má samhliða kennslubókum. Þetta efni felur greinilega líka í sér áhugaverðar menningarmiðlaðar hugmyndir. Í þessari rannsókn var þó ákveðið að afmarka greininguna við texta kennslubókanna sjálfra, enda það í sjálfu sér mjög umfangsmikið. Mannfræðingurinn Viktor Turner (1967) heldur því fram að mörg tákn séu margræð (multivocal) og feli í sér margar og ólíkar merkingar. Ég lít á texta námsbóka sem margræð tákn í merkingu Turners og því megi skoða þær út frá mörgum ólíkum sjónarhornum. Sjónarhorn mitt er mótað af kenningalegum bakgrunni mínum sem og nálgun minni sem mannfræðingur. Rannsóknin afmarkast að mestu leyti við ímyndir Afríku en engu að síður var allt efni skoðað sem tengdist á einhvern hátt samfélögum eða löndum sem hafa sögulega verið skilgreind sem framandi á Vestur- löndum. Skilgreining á framandleika er augljóslega gildishlaðin og háð tíma, stað og aðstæðum. Þó má benda á að ákveðnir samfélagshópar hafa sögulega séð verið skil- M E N N T A Ð A R O G V I L L T A R Þ J Ó Ð I R : 72
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.