Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 87

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 87
Talið er að nemendur með erlent móðurmál séu 3% grunnskólabarna, eða 1.340 tals- ins. Rúmlega helmingur þeirra býr á höfuðborgarsvæðinu (Hagstofa Íslands, 2004b). Ímyndir fólks frá „fjarlægum“ slóðum er knýjandi viðfangsefni vegna breytts veruleika íslensks samfélags en einnig vegna aukinnar samtengingar heimsins með hnattvæðingu. Ég tel áhugavert og afar mikilvægt að skoða hvað sagt er um fjöl- breytileika í heiminum, sem og birtingarmyndir hans í íslenskum námsbókum. Við sem búum á Íslandi þurfum að spyrja okkur sjálf gagnrýnið, hvaða mynd við erum að bregða upp fyrir börn af erlendum uppruna af íslenskum og erlendum samfélög- um þeirra, en einnig hvaða mynd við erum að bregða upp fyrir íslensk börn – ljósum og dökkum á hörund – af íslensku samfélagi og heiminum almennt. ÞAKKIR OG ATHUGASEMDIR I Rannsóknin er hluti af stærra verkefni, sem ber heitið „Ímyndir Afríku á Íslandi“ og rannsakar umfjöllun um Afríku á Íslandi sögulega og í samtímanum. Verkefnið er styrkt af Rannís, Rannsóknarsjóði Háskóla Íslands og Aðstoðarmannasjóði Háskóla Íslands. II Margt aðstoðarfólk hefur komið að verkefninu en hér má sérstaklega nefna Þórönu Elínu Dietz sem sá um gagnasöfnun fyrir námsbókahluta verkefnisins og hluta af úrvinnslu gagna og Gunnar Þór Jóhannesson sem aðstoðaði sérstaklega við tölfræðilega greiningu á gögnunum. Ég vil þakka starfsfólki bókasafns Kenn- araháskóla Íslands en meirihluta námsbóka sem notaðar voru í rannsókninni var safnað þar. Ég er að sjálfsögðu ábyrg fyrir verkefninu í heild og niðurstöðum þess. III Í lista yfir frumheimildir er gefið yfirlit yfir bækurnar sem skoðaðar voru í rann- sókninni. Ekki voru þó í öllum tilfellum fullnægjandi upplýsingar til staðar varð- andi höfund, útgáfuár og stað og útgefanda. Sem dæmi má nefna að oft reyndist erfitt að átta sig á bókunum eftir Jónas Jónsson, þar sem í sumum tilfellum var um að ræða sömu bók, þó með nýjum titli og örlítið endurbætt. Annað sem einnig olli ruglingi var hversu líkar margar bókanna voru, sem höfðu þá gjarnan sömu fyrir- mynd erlendis frá, en þýddar eða afritaðar af ólíkum höfundum. Til glöggvunar má nefna bækur sem gerðar voru eftir landafræði danska prófessorsins Ed. Erslev (1824–1892). Reynt var að skoða allar útgáfur bókanna sem höndum varð komið yfir. Hins vegar var ekki alltaf gott að sjá um hvaða útgáfu var að ræða, þar sem slíkt var oft ekki tilgreint sérstaklega. Í heimildalistanum eru útgáfunúmer nefnd hafi þær upplýsingar verið til staðar í bókinni. Ártalið í hornkofa á eftir ártali í sviga á að gefa til kynna eldri útgáfu bókarinnar sem einnig var skoðuð fyrir rannsóknina, það þarf hins vegar í öllum tilfellum ekki endilega að vera elsta eða frumútgáfa bókarinnar. Til frekari glöggvunar á þeim heimildum sem notaðar voru í rannsókninni er heimildalista frumheimilda skipt í þrennt. Fyrst koma þær bækur sem innihalda eitthvað um framandleika (samkvæmt skilgreiningu rannsóknarinnar og svo listi K R I S T Í N L O F T S D Ó T T I R 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.