Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 106

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 106
þessarar greinar og upphafsmaður GÓB-verkefnisins, Jónas Pálsson, var þeirrar skoðunar þá og er enn, að við framkvæmd umbótastarfsins hafi of lítil áhersla verið lögð á persónulega þætti sem snerta áhuga nemenda og kennara, svo og félagsleg og aðstæðubundin skilyrði í skólum (Jónas Pálsson 1978a, 2002). Með þessu er ekki dregið úr nauðsyn þess að regluverk skóla sé skilvirkt, vandaðar námskrár teknar saman, náms- og kennslubækur endurnýjaðar, nýjustu kennslugagna aflað og náms- og kennslutækni efld svo helstu atriði séu nefnd. Drýgsti þáttur í starfi sérhvers kennara er að efla og viðhalda áhuga nemenda á námi sínu og á undanförnum árum hefur áhugi fræðimanna beinst í auknum mæli að hlutdeild nemenda í árangursríku skólastarfi (Cooper og McIntyre, 1996). Vakin hefur verið athygli á því að almennt hafi ekki nægur gaumur verið gefinn að því að kanna viðhorf nemenda og sjónarmið um nám og kennslu og hafa þau til hliðsjónar við mótun og framkvæmd skólastarfs (Duffield, Allan, Turner og Morris, 2000; Flutter og Rudduck, 2004; Rudduck, Caplain og Wallace, 1996; Rudduck og Flutter, 2004). En því eru þessi atriði nefnd hér að eina af kveikjum þessa verkefnis er vafalaust að finna í slíkum viðhorfum, ásamt með reynslu Jónasar Pálssonar sem skólasálfræðings og skólastjóra. Jónas hefur alla tíð haft mikinn áhuga á félagspólitískum áhrifaöflum í víðum skilningi. Hann hefur líka löngum hamrað á því að skólamál og menntamál yfirleitt væru nátengd félagslegri og efnahagslegri þróun í hverju landi og er þar sama sinn- is og Carron og Chau (1996). Í þessu samhengi notaði hann gjarnan slagorðið: „Skóla- mál eru ævinlega stjórnmál“ í greinaskrifum á 7. og 8. áratug síðustu aldar. Í sambandi við áhuga og námshvöt má nefna til sögunnar tvo fræðimenn, þá John Dewey og Jerome S. Bruner. Dewey var einn helsti kenningasmiður verkhyggjusinna (pragmatists). Reynsluhugtakið liggur til grundvallar kenningum Deweys um nám og kennslu og er samofið þeim skilningi að leiðin til vaxtar og þroska felist í athöfn og virkni einstaklingsins, sbr. hugtakið learning by doing (Dewey, 2000a og 2000b). Hjá Bruner (1960, 1974) er vitneskja einstaklings eins konar líkan sem við smíðum svo að fyrirbæri úr reynslu okkar öðlast merkingu, tilgang og skipan í vitund okkar. Bruner telur að þekking sé í sjálfu sér hlutlæg en að líkönin séu ekki óbreytanleg heldur endurmótist þau stöðugt fyrir áhrif nýrrar reynslu (Jónas Pálsson, 1978b). Einstak- lingurinn (barnið/nemandinn) er virkur og hann aflar sér þekkingar með eigin athöfn. Um þetta meginatriði virðast þeir Dewey og Bruner á einu máli. Þetta baksvið, svo vítt og almennt sem það er, myndar hinn hugmyndalega grunn GÓB-verkefnisins og ræður vali á verklagi og vinnugögnum við framkvæmd þess. VERKLAG OG VINNUGÖGN GÓB-rannsóknarverkið skiptist í fjóra meginþætti og er hver þáttur nokkuð sér um efnistök, aðferð og vinnugögn (rannsóknargögn) eða matstæki á vettvangi. Verk- þættir þessir eru: 1. Byrjunarviðtal við nokkra starfendur sem þekkja vel til í grunnskólanum. 2. Viðhorfakönnun meðal foreldra, starfsfólks skólans og nemenda. 3. Könnun starfsskilyrða í grunnskólanum. Sjö efnisflokkar greindir og metnir. G R U N N S K Ó L A R Í Ó L Í K U M B Y G G Ð A R L Ö G U M 106
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.