Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 107
MORGUNN
227
svarað, að þetta væru »Eyjamenn<. Hver komst af?
spurði eg; var því svarað, að það væri »formaðurinn« en
eg vÍ8si ekkert og apurði þvi, hver formaðurinn væri, og
var því svarað: »Snæbjörn í Hergilsey«. (Hann var einn
af »Eyjamönnum«, og mér skilst svo, sem »Eyjólfs«-nafnið
í draumnum hafi komið þar fram). Hvað voru þeir
margir sem druknuðu? spurði eg; (urðu að selum sam-
kvæmt sögunni um Faraó). Þeir voru »6« var svarið.
Er svo þessi sorgarsaga á enda og draumurinn fullráð-
inn. Eg tel mig segja satt frá, en þeir mega trúa öðru,
8em vilja.
4. Myndin af Knsti og ræningjunum.
Draumur Quðm. Guðmundssonar frá Qvendareyjum,
18. september 1916.
Eg þóttist vera staddur dti í Stykkishólmi og koma
upp i pósthús. Þar eru mér afhent 2 bréf; annað þykir
mér í stærra meðallagi, og það opnaði eg strax; þar er
innlögð mynd af Jesú Kristi á krossinum og ræningjun
um sínum hvorumegin
Þegar eg hafði horft á þetta nokkur augnablik, þótti
mór myndin stækka, og undraljóma verða í kringum
hana; uppaf myndinni var stór sól eða geislabrot, sem
gerði þetta svo dýrlegt, að eg get ekki með orðum lýst
þeirri furðulegu birtu. Ræninginn, sem iðraðist, var orð-
inn bjartur áBýndar. Á hinum var farið að birta yfir
hálft andlitið, en nokkuð af því var svart. Mér fanst
mér líða. svo undur vel, meðan eg horfði á þessa ljóm-
andi mynd
Draumurinn var ekki lengri, og eg vaknaði. Eg var
lengi bugsi á eftir.
Eg fór út í Hólm nokkrum dögum síðar. Þá fékk eg
2 bréf og opnaði tafarlaust' stærra bréfið (eins og í draumn-
um). Það var frá Guðm. J. Breiðfjörð í Reykjavík, um
það að hann sendi mér minnisvarða yfir konuna mína