Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 79
MOR&UNN
199
F erming.
Nýlega hefir farið fram hér í bænum málaleitan, sem,
ásamt undirtektunum. er, að vorum dómi, þess eðlis, að
rétt sé að gera hana að umtalsefni.
Prófessor Haraldur Nielsson fór þess á leit við stjórn-
arráðið, í bréfi dags. 13. apríl síðastl., að honum yrði
leyft aö ferma þrjá drengi, sem hann hafði sjálfur búið
undir fermingu. Þar af var einn drengurinn sonur hans.
í umsókn sinni kveður prófessorinn svo að orði:
„Sú er aðalástæðaD fyrir þessari beiðni, að eg er ekki ánægður
með þær kenslubæknr, sem lagðar ern til grundvallar við barnafræðslu
í krÍBtindómi meðal vor — kverin. Þar er ýmsu haldið fram, sem eg
get ekki samvizku minnar vegna sagt börnum og unglingum, að sé satt
og rétt. Hitt tel eg mjög tvíeggjað, að vara börnin viö suinu í þeirri
bók, sem notuð er og á að flytja hin helgustu fræði. Við það hlýtur
virðing fyrir bókinni og traust á henni að rýrna mjög, og þá er um
leið við þvl búið, að hún verði óbeinlínis til að veikja áhrif allrar trú-
arbragða-fræðslunnar.
„Eg læt þess getiö, aö eg hefi notað Barnabibliuua og Bibiusögur
Balslevs (nýustu útgáfuna), ásamt fræðum Lúters, við kensluna. Enn
fremur hefi eg látið drengina læra utan bókar 12 sálma. Ekki hefi eg
farið yfir hvern kafla í fyrra hluta Barnabiblíunnar, en aftur á móti
vandlega yfir mestallan siðari hlutann (slept úr sumum köflum, «em
teknir eru eftir Jóhannesarguðspjalli), og lagt langmesta áherzlu á kenn-
ing Krists: útskýrt vandlega alla fjallræðuna og allar dæmisögur hans,
og látið drengina læra dæmisögurnar allar.
„Eg hefi hagað fræðslunni svo, að eg byrjaði hana i október og
hafði jafnan tvo tima á viku íram að nýári, en úr þvi þrjá tlma á viku
hverri, og mun fjölga þeim siðar. Býst þó varla viö að láta ferming-
una fara fram fyr en i júni. Vona eg, að af þessu sjáist, að eg vil sízt
létta þessum drengjum fermingarundirbúninginn.
„Enn fremur læt eg þess getið, að eg tók að mér að búa þessa
tvo drengi undir fermingu með syni minum, til þess að hann þyrfti
ekki að vera einn i kenslustundunum og við fermingarathöfnina11.
Stjórnarráðið vísaði þessu máli til aðgerða biskupa,
og fer hér á eftir aðalkaflinn úr bréfi biskups til prófessors-
ins, dags. 3. maí síðastl.: