Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 31
MORGUNN
151
skýrt trá. Og einhver orsök hlýtur uð vera til staðreynd-
anna. Hver getur orsökin verið, efnisleg eða sálarleg,
sem veldur öllum þessum fyrirbrigðum, önnur en sú, sem
fram er haldið af röddunum? Eg hefi ekki heyrt minst
á ueina aðra, og eg get enga aðra hugsað mér.
»Raddirnar fullyrða, að hvíslið og söngurinn og svörin
við spurningunum, sem heyrðust gegnum psychofóninn,
hafi komið frá framliðnum mönnum, sem með aðstoð
mannlegs miðilskraftar komi þessu til vegar, með öllu
samkvæmt náttúrulögmáli, þó að við skiljum ekki enn,
hvernig þetta gerist. Eg held, að psychofóninn flytji
okkur einu skrefl nær því, að ekki verði lengur deilt —
af því að ekki verði lengur unt að deila — um sannan
irnar fyrir framhaldslífl manuanna eftir að þeir hafa farið
af þessum heirni*.
Svo sem kunnugt er, hefir Edison trú á þvi, að hann
komi með áhald, sem flytji skeyti frá framliðnum mönn-
um, án þess að nokkur miðill þurfi að vera viðstaddur.
Glasgow-mennirnir halda ekki neinu slíku fram um sitt
áhald. Hjá þeim heyrist ekkert miðilslaust. En óneitan-
lega er það merkilegt og mikilvægt, ef sú fullyrðing fær
staðfesting, sem haldið er fram í þessari ritgjörð, að radd-
irnar geti hvergi átt upptök sín annarstaðar en i lokuð
um kassa.
Sir Arthur Conan Doyle mintist á þetta áhald í ein-
um af fyrirlestrum þeim, sem hann hefir flutt i London
fyrir miklum manngrúa, síðan er hann kom heim úr
Ástralíu-ferð sinni. Hann var að tala uiu þá snilli, sem
kæmi fram hjá vinum vorum í öðrum heimi við það örð-
uga verk að færa okkur heim sanninn um tilveru sína
og finna ráð gegn öllum okkar rengingum.
»Þeir gera það með frábærri ráðkænsku*, sagði hann.
Þeir verða þess varir, að það er að röddunum utan við
miðlana fundið, að þær kunni að vera búktal — og að
þær kunni að vera hver veit hvað. Nú hefir það gerst
í Glasgow, að nokkrir tilraunamenn, sem ekki gera sór