Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 82
202
MORGUNN
manna hafi ekki sama rétt til þess að fá hann til að gera
prestaverk fyrir aig eins og aðra presta.
Um þetta atriði er það að segja, að enn er það álita-
t
mál. Ur því hefir hvorki verið skorið af stjórnarráði,
dómstólum né löggjafarvaldi. Biskup hefir þann skilning
á málinu, aem kemur fram i bréfi hans. En ýmsir aðrir
skýrir menn hafa áreiðanlega annan skilning á þessu.
Síra H. N. var vígður til síns prestakalls nákvæmlega
eins og aðrir sóknarprestar. Hans prestakall er Laugar-
nesspitalinn. Hann veitir söfnuði sínum nákvæmlega
sams konar þjónustu eins og aðrir prestar veita sínum
söfnuðum. Hann er ekki aðstoðarprestur, heldur er prests-
embætti haus alveg jafn-sjálfstætt og embætti nokkurs
sóknarprests. Það er ekkert undarlegt, þó að ýmsum
virðist það kynlegt, að tálmanir skuli vera settar upp
gegn því, að hann vinni fyrir þá, sem þess óska, þau
prestsverk, sem öðrum prestum er heimilt að vinna. —
Mörgum fin8t hafa verið gengið á réttindi þeirra
manna, sem hafa, til dæmis að taka, viljað fá síra H.
N. til þess að gefa sig Baman i hjónaband samkvæmt
leyfisbréfi, en verið skyldaðir til að greiða öðrumhvorum
prestanna við dómkirkjuna gjaldið fyrir þetta prestsverk,
þó að hvorugur þeirra hafi komið þar nærri. Það er
ávalt illa farið, þegar menn fara að fá einbverja ástæðu
til þess að láta sér finnast að kirkjan beiti þá rangindum.
En hvernig sem á málið er litið, þá væri ákjósanlegt, að
löggjöfin yrði látin skera úr þessu máli.
Annað atriði i biskups-bréfinu, sem ástæða er til að
ihuga, er fullyrðingin um hinn »löghelgaða rétt« sóknar-
preBta til að ferma ungmenni. Oss virðist sem heldur
lítið verði úr þeim iöghelgaða rétti, þar sem nú svo er
ástatt, sem biskup tekur fram sjálfur, að hverjum manni
er frjálst að sleppa fermingunni með öllu. Hann er jafn-
góður og gildur þjóðkirkjumaður fyrir því. Og maðurinn,
sem farið hefir á mis við ferminguna, missir einskis í við