Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 95
MOE&UNN
215
rainningu hans til keiðurs, og eg er þakklátur fyrir það,
að mér heflr veriö boðið að vera einn þeirra, er rita um
hann minningargrein. I undanfarinni setningu, þai' seni
eg læt i ljó8 von mína um að flnna hann síðar, hefi eg
þegar skýrt frá fullvissu minni um áframhald lifsins, sem
vitandi veru, eftir þá breytingu, er við köllum dauða.
Enn fremur finn eg, að það er skylda mín við hinn liðna
vin, að viðurkenna opinberlega, að eg hefi gengið gegnum
hin ýmsu andlegu og trúarlegu stig efnisliyggju, vafa-
semda og vantrúar á öllu andlegu, unz eg fékk óhrekj-
andi sannanir, sem komu mér eigi til að trúa, en gáfu
mér sannfæringarkraft þess er veit.
Það mundi árangúrslaust, að skýra hér frá reynslu
þeirri af sálarlegum fyrirbrigðum, er eg hafði í huga að
ræða við dr. Hyslop. Eg hefi ætíð sagt, að þegar um
dularfull fyrirbrigði er að tefla, sé það einum óhrekjandi
sönnun, sem öðrum nægir ekki. Sérhver verður að rann-
saka fyrir sig, og þó að sjálfsagt sé at athuga gaumgæfi-
lega vitnisburði annara, svo sem þá er finnast i bókum
þeirra Lodge’s, Hyslops, Steads, Hill’s, Doyle’s og fleiri,
ásamt bókum, sem Sálarrannsóknarfélögin tvö hafa gefið
út, þá ættu menn þó ekki að treysta þeim eingöngu. En
eg vil taka það fram, að eftir allan lestur minn og rannsókn-
ir, hefi eg sannfærst um það, að hver sá, er rannsakar slík
fyrirbrigði, verður að losa sig við alla hleypidóma, verður að
vera athugull, og leita dyggilega að sannleikanum, um fram
alt án þess að taka tillit til þess sem honum kann sjálfum að
vera skapi næst. Hann verður að koma að þessu máli með
einlægri lotDÍngu, djúpri alvöru og brennandi löngun til að
verða að gagni. — Sá rannsakari dularfullra fyrirbrigða, sem
ætlar, að árangur rannsókna sinna muni létta skyldur
sínar og ábyrgðartilfinningu gagnvart efnisheiminum, —
honum skjöplast alvarlega. Þvert á móti, hafi hann hæfi-
leika, sem nauðsynlegir eru óhlutdrægum sannleiksleit-
andi rannsakara, mun árangur rannsókna hans leiða hann
til háleitari skilnings á orðunum »skylda« og »þjónusta«.